Fotbolti.net
28.11.26 - 08:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Glasner eftir sigur á Chelsea - „Verðum að gera betur"

Glasner eftir sigur á Chelsea - „Verðum að gera betur"
Canon

Mynd: EPA

Nottingham Forest er aðeins þremur stigum frá fallsæti en liðið hefur unnið tvo af síðustu þremur leikjum en það var gegn Man City og Chelsea.

Oliver Glasner var að vonum sáttur eftir sigurinn á Chelsea í gær.
„Þetta var mjög góður leikur. Tveir heimasigrar í röð gegn City og Chelsea, þá hlýtur þú að vera gera eitthvað rétt. Við gáfum þeim tvö mörk í lokin eftir að hafa tapað boltanum. Við þurfum að stjórna leiknum betur en þriðja markið var frábært," sagði Glasner.

„Ég held að sigurinn okkar gegn City hafi verið aðeins annar sigurinn á almanaksárinu 2026. Allt í einu lítur þetta út eins og virki. Verum auðmjúk. Tveir stórir sigrar. Njótum þessarar tilfinningar. Og svo í næstu viku mætum við Brighton hér og allir geta séð hvernig Brighton er að spila á þessu tímabili.“
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.