27.11.26 - 21:22
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Stuðningsmenn Chelsea bauluðu á Fofana

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Stuðningsmenn Chelsea eru allt annað en sáttir með Wesley Fofana, varnarmann liðsins, og bauluðu á hann í leik liðsins gegn Nottingham Forest sem er í fullum gangi.
Fofana fór í viðtal, sem Chelsea gaf ekki grænt ljós á, á Youtube-rás Frakkans Zack Nani þar sem hann grínaðist meðal annars um vítaklúðrið sitt sem tryggði Liverpool sigur á Chelsea í enska deildabikarnum í síðasta mánuði. Hann sagði að hann hafi verið fljótur að jafna sig á þessu þar sem hann væri ekki góð vítaskytta.

Xabi Alonso sagði að Fofana hafi beðist afsökunar og fullvissaði hann um að þetta myndi ekki gerast aftur.
Hann er í byrjunarliðinu í kvöld en hann fékk á sig vítaspyrnu sem Morgan Gibbs-White skoraði úr og kom Forest í 2-0. Staðan er 2-1 þegar um hálftími er til leiksloka.