27.11.26 - 23:11
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Grátlegt tap hjá Andra Fannari - Sjö leikir í röð án sigurs hjá Brynjólfi

Mynd: Kasimpasa

Mynd: Kasimpasa
Brynjólfur Willumsson spilaði allan leikinn þegar Groningen gerði 1-1 jafntefli gegn Willem II í hollensku deildinni í kvöld.
Willem II var með forystuna í hálfleik en Groningen jafnaði metin í uppbótatíma. Groningen hefur ekki unnið í síðustu sjö leikjum og tapaði m.a. gegn B-deildarliðinu FC Emmen í bikarnum. Groningen er í 10. sæti með 16 stig eftir 14 umferðir.

Andri Fannar Baldursson kom inn á sem varamaður í grátlegu 3-2 tapi Kasimpasa gegn Rizespor í tyrknesku deildinni. Kasimpasa var með 2-1 forystu í upphafi seinni hálfleiks en Rizespor jafnaði metin og sigurmarkið kom í uppbótatíma.
Kasimpasa er í 5. sæti með 23 stig eftir 13 umferðir.
Brynjar Ingi Bjarnason kom inn á sem varamaður í 1-1 jafntefli Sondejyske gegn Brondby í efstu deild í Danmörku. Sonderjyske er í tólfta og neðsta sæti með 10 stig eftir 16 umferðir. Liðið er stigi á eftir Lyngby.
Daniel Ingi Jóhannesson var í byrjunarliði Kolding sem tapaði 2-1 gegn Hvidovre í næst efstu deild í Danmörku. Adam Ingi Benediktsson var í markinu hjá AB í 2-2 jafntefli gegn Vejle. Fannar Berg Gunnólfsson er þjálfari AB.
AB er í 4. sæti með 25 stig eftir 16 umferðir og Kolding er í 9. sæti með 16 stig.