Fotbolti.net
27.11.26 - 22:40
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Alonso: Þurfum að finna lausnir með leikmönnunum sem eru til staðar

Alonso: Þurfum að finna lausnir með leikmönnunum sem eru til staðar
Canon

Mynd: EPA

Chelsea hefur tapað fjórum af síðustu fimm deildarleikjum sínum eftir 3-2 tap gegn Nottingham Forest í kvöld. Xabi Alonso, stjóri Chelsea, var að vonum ekki sáttur í leikslok.
„Þetta er erfitt, að koma hingað og tapa, en við þurfum að reyna finna lausnir og standa saman. Svona er fótbolti, við getum snúið þessu við en þurfum að leggja hart að okkur," sagði Alonso.

„Við fáum á okkur mörk og getum ekki haldið stöðunni. Þegar við minnkuðum muninn í 2-1 var skriðþunginn með Forest og eftir nokkrar mínútur fengum við á okkur þriðja markið. Sjálfstraustið er ekki í botni."

Það hefur verið mikið rót á varnarlínunni en miðjumaðurinn Moises Caicedo var færður í miðvörðinn og Levi Colwill var settur á bekkinn í kvöld.

„Við þurfum að bæta okkur, við þurfum að finna lausnir með leikmönnunum sem eru til staðar. Við munum fá nokkra mikilvæga fljótlega til baka en þeir sem eru til staðar verða að standa saman. Við þurfum að hjálpa þeim."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.