28.11.26 - 11:15
Brynjar Ingi Erluson
Markahæsti leikmaður ÍH til Eyja (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Elmar Rútsson, markahæsti leikmaður ÍH á síðasta tímabili, er genginn til liðs við ÍBV.
Elmar, sem er fæddur árið 2006, átti frábært tímabil með ÍH í 4. deildinni í sumar þar sem hann skoraði 12 mörk í 14 leikjum.
Hann lék áður með yngri flokkum FH en gekk til liðs við ÍH fyrir tímabilið. Nú hefur hann samið við ÍBV, sem féll úr efstu deild í haust og leikur því í Lengjudeildinni á næsta tímabili.
Elmar er sonur Rúts Snorrasonar, sem varð Íslandsmeistari með Eyjamönnum árin 1997 og 1998 og bikarmeistari 1998. Rútur lék einnig þrjá A-landsleiki fyrir Ísland auk þess að spila fjölmarga leiki með yngri landsliðunum en hann spilaði með ÍBV frá 1992 til 1999.
Afi Elmars er Snorri Rútsson, einn af leikjahæstu leikmönnunum í sögu ÍBV og Íslandsmeistari með liðinu árið 1979 og bikarmeistari 1972 og 1981, en hann lék með Eyjamönnum frá 1971 til 1984.