Andri Hjörvar: Mig langaði svo rosalega í þrjú stig
Auglýsing

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þór/KA fékk Fylki í heimsókn í botnbaráttuslag í Pepsi Max deild kvenna í dag.
Leiknum lauk með markalausu jafntefli. Andri Hjörvar Albertsson, þjálfari Þór/KA var til viðtals hjá fótbolta.net eftir leikinn. Hvernig er tilfinningin?
„Ég er pínu súr af því að mér langaði svo rosalega í þrjú stig og satt að segja vorum við mjög nálægt því í nokkur skipti, stig er stig en ég er frekar súr með að fá bara eitt stig út úr þessum leik."
Hvað vantaði uppá til að ná í markið?
„Pota honum inn bara, vera tilbúnar að henda sér í boltann við mark andstæðingana og pota honum inn. Við vorum að skapa færi en það vantaði bara upp á stóru tánna."
Hvað þurfið þið að bæta til að ná þremur stigum í næsta leik?
„Við þurfum að halda áfram þessu momenti, við erum búin að gera tvö jafntefli í röð sem er ekki alslæmt, annað á móti sterku liði Vals, höldum hreinu hér í dag þannig að það er margt jákvætt til að byggja á. Við erum að fara inn í algjört stríð á móti Keflavík, við þurfum að vera tilbúnar í baráttu og sækja þrjú stig af því að þau eru lífsnauðsynleg í þeirri baráttu sem við erum í."