Logi: Veit ekki hvort Víkingsliðið er betra

Logi í leik með Víkingi árið 2023

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Logi í leik með Víkingi árið 2023

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Logi Tómasson, leikmaður Samsunspor í Tyrklandi, var í viðtali hjá Fótbolta.net á dögunum. Þar var rætt um tónleika sem hann hélt til styrktar Ingvars Jónssonar, markvarðar Víkings, sem er að berjast við krabbamein.
Víkingar hafa byrjað tímabilið frábærlega í sumar en fyrsta tapið kom í gær þegar liðið tapaði gegn Breiðabliki í undanúrslitum Mjólkurbikarsins.

Logi Tómasson var spurður út í Víkingsliðið en hann var lykilmaður í liði Víkinga frá 2021-2023.
„Það kemur ekkert á óvart. Ég er búinn að mæta á nokkrar æfingar í sumarfríinu mínu. Það eru svo mikil gæði, ekki bara fyrstu ellefu heldur allur hópurinn. Þetta er svipað og þegar ég var þarna, þetta er vél sem er að malla. Sölvi er góður þjálfari og Kári að stjórna þessu. Þetta kemur ekkert á óvart að þeir séu að pakka deildinni saman," sagði Logi.
Logi var beðinn um að bera liðið í dag saman við liðið sem hann spilaði með.
„Erfitt fyrir mig að segja utan frá. Við vorum helvíti góðir, ég man þegar við unnum titilinn og ég fór út þá fengum við ekki mark á okkur í fyrstu sjö leikjunum. Þetta er svipuð tilfinning og það tímabil. Allir þessir leikmenn sem eru búnir að vera lengi eru betri og reyndari. Það eru fáránleg gæði í þessum hóp. Það er erfitt að svara þeirri spurningu."
Þá var Logi spurður út í landsliðsfélaga sinn Gylfa Þór Sigurðsson.
„Mjög vel gert hjá manninum. Hann er 36 ára og mikill atvinnumaður bæði með landsliðinu og Víkingi. Hann lyftir öðrum upp og maður sér að hann er búinn að spila á hæsta 'leveli'. Hann er ennþá með þessi gæði í sér og mér finnst það vera kveikna ennþá meira í honum núna. Það er búið að taka smá tíma en nú er hann að stíga ennþá meira upp," sagði Logi.