Fotbolti.net
19.07.26 - 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Subway

HM í dag - Spænskumælandi úrslitaleikur

HM í dag - Spænskumælandi úrslitaleikur
Canon

Mynd: EPA

Evrópumeistarar Spánar spila við ríkjandi heims- og Suður-Ameríkumeistara Argentínu í úrslitaleik heimsmeistaramótsins seinnipartinn í dag.
Það ríkir gríðarleg eftirvænting fyrir þennan slag þar sem Spánverjar eru í leit að öðrum heimsmeistaratitli sögu sinnar á meðan Argentínumenn eru í leit að öðrum heimsmeistaratitlinum í röð.

39 ára Lionel Messi hefur verið í miklu stuði á mótinu en Spánverjar eru búnir að standa sig frábærlega og því verður afar spennandi að fylgjast með úrslitaleiknum.

Í undanúrslitunum sýndi Spánn yfirburði í sigri gegn ógnarsterku liði Frakklands á meðan Argentína lagði England að velli eftir furðulegar ákvarðanir Thomas Tuchel þjálfara.

Úrslitaleikur HM
19:00 Spánn - Argentína
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.