Leipzig fær miðvörð úr enska boltanum (Staðfest)

Mynd: Burnley

Mynd: EPA

Mynd: Burnley
RB Leipzig er búið að festa kaup á Maxime Estéve, miðverði sem féll með Burnley á síðustu leiktíð.

TENGT EFNI
Burnley fær 32 milljónir frá Leipzig
Leipzig borgar 25 milljónir evra fyrir Estéve en upphæðin getur hækkað upp í um það bil 30 milljónir með árangurstengdum aukagreiðslum. Þar að auki heldur Burnley hlutfalli af endursöluvirði leikmannsins.
Estéve er örvfættur miðvörður sem gerir fimm ára samning við Leipzig. Hann er 24 ára gamall og var meðal betri leikmanna í liði Burnley.
Estéve lék níu leiki fyrir yngri landslið Frakklands og var í hópnum sem endaði í öðru sæti á Ólympíuleikunum 2024.
Hann er þriðji leikmaðurinn sem gengur til liðs við Leipzig í sumar eftir að Brajan Gruda og Ota Yamamoto skrifuðu undir samninga. Yamamoto var þó lánaður beint aftur heim til Japans.
Leipzig endaði í þriðja sæti þýsku deildarinnar á síðustu leiktíð og leikur því í Meistaradeildinni í haust.

Maximum Maxime ???????????????????????????? ????? pic.twitter.com/0oc9eiDFnk
— RB Leipzig English (@RBLeipzig_EN) July 17, 2026

Mynd: EPA