Fotbolti.net
19.07.26 - 09:30
Ívan Guðjón Baldursson
Í samstarfi við styrktaraðila

West Ham hafnaði 34 milljónum frá Roma

West Ham hafnaði 34 milljónum frá Roma
Canon

Mynd: EPA

West Ham United, sem féll úr ensku úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð, hefur hafnað opnunartilboði AS Roma í kantmanninn Crysencio Summerville.
Roma bauð 34 milljónir punda, auk árangurstengdra aukagreiðslna, en Hömrunum þótti tilboðið ekki nægilega gott.

Roma ætlar að mæta með endurbætt tilboð á borðið fyrir Summerville sem er 24 ára gamall og kom með beinum hætti að 12 mörkum í 34 leikjum á nýliðnu tímabili.

Aston Villa er einnig meðal áhugasamra félaga og hefur Manchester United verið nefnt til sögunnar.

Summerville skoraði tvö mörk og gaf tvær stoðsendingar í fjórum leikjum á heimsmeistaramótinu í sumar.

Rómverjar eru í leit að nýjum kantmönnum og horfa til úrvalsdeildarinnar. Þeir eru enn í viðræðum við Chelsea um kaup á Argentínumanninum Alejandro Garnacho, sem er 22 ára gamall og með sex ár eftir af samningi.

Garnacho er spenntur fyrir að spila í Rómarborg en Rómverjar vilja fá kantmanninn á láni með kaupmöguleika, á meðan Chelsea vill selja hann.

Roma er að undirbúa nýtt lánstilboð með árangurstengdri kaupskyldu en Chelsea vill fá 50 milljónir evra fyrir leikmanninn.

Roma leggur fram tilboð í Garnacho
TENGT EFNI

Roma leggur fram tilboð í Garnacho

Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey
West Ham hafnaði 34 milljónum frá Roma
Canon

Mynd: Chelsea

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.