Fotbolti.net
19.07.26 - 07:30
Ívan Guðjón Baldursson

Rogers fer í læknisskoðun á morgun

Rogers fer í læknisskoðun á morgun
Canon

Mynd: EPA

Morgan Rogers mætir til London á morgun, mánudag, til að gangast undir læknisskoðun og skrifa undir samning við Chelsea.
Aston Villa búið að samþykkja risatilboð í Morgan Rogers
TENGT EFNI

Aston Villa búið að samþykkja risatilboð í Morgan Rogers

Chelsea er að borga metfé til kaupa Rogers úr röðum Aston Villa, eða 117 milljónir punda. Það er einni milljón meira heldur en Manchester City greiddi til að kaupa Elliot Anderson úr röðum Nottingham Forest fyrr í sumar.

Rogers verður þar með dýrasti enski leikmaður sögunnar og sá næstdýrasti í sögu ensku úrvalsdeildarinnar eftir að Liverpool borgaði 125 milljónir fyrir Alexander Isak.

Rogers hefur verið sterklega orðaður við Arsenal í sumar en ólíklegt er að Englandsmeistararnir séu tilbúnir að jafna himinhátt mettilboð Chelsea.

Hann gerir sex ára samning með möguleika á auka ári.

Middlesbrough fær rúmar 20 milljónir fyrir Rogers
TENGT EFNI

Middlesbrough fær rúmar 20 milljónir fyrir Rogers

Rogers fer í læknisskoðun á morgun
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.