Fotbolti.net
19.07.26 - 08:30
Ívan Guðjón Baldursson
Jói útherji

Framkvæmdastjórinn ósáttur með Joan Laporta

Framkvæmdastjórinn ósáttur með Joan Laporta
Canon

Mynd: EPA

Miguel Ángel Gil, framkvæmdastjóri Atlético Madrid, lét Joan Laporta forseta Barcelona heyra það í yfirlýsingu sem birtist á YouTube rás Atlético.
Alvarez varpar sprengju: Best fyrir alla að ég fari
TENGT EFNI

Alvarez varpar sprengju: Best fyrir alla að ég fari

Gil byrjaði á að segja að argentínski framherjinn Julián Alvarez væri ekki til sölu og gagnrýndi svo Laporta.

„Ég þekki Joan (Laporta) nægilega vel til að vita að hann er stöðugt í einhverjum fjölmiðlaleik fyrir sinn eigin persónulega sirkús. Ég er ekki móðgaður útaf þessu Alvarez máli, ég á í góðum persónulegum samskiptum við hann," sagði Gil.

„Ég er búinn að ræða við hann persónulega, ég sagði honum að hætta þessu. Ég var skýr og sagði að við ætluðum ekki að selja hann undir neinum kringumstæðum. Hann kýs að halda þessum fjölmiðlasirkús á lífi útaf því að hann nýtur þess. Hann er léttúðugur og elskar að eiga samskipti við fjölmiðla og stuðningsmenn.

„Hann veit samt fullvel að Julián er ekki að skipta yfir til Barcelona fyrir nlæstu leiktíð. Honum finnst gaman að spila þennan leik við fjölmiðla og stuðningsmenn, en það versta er að hann er að spila þennan leik líka við Julián sjálfan."


26 ára gamall Alvarez er með fjögur ár eftir af samningi sínum við Atlético Madrid. Hann hefur komið með beinum hætti að 66 mörkum í 106 leikjum á tveimur árum hjá félaginu.

Julián Alvarez er ekki til sölu
TENGT EFNI

Julián Alvarez er ekki til sölu

Framkvæmdastjórinn ósáttur með Joan Laporta
Canon

Mynd: EPA

Framkvæmdastjórinn ósáttur með Joan Laporta
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.