
Napoli vill framlengja samninginn við McTominay


Mynd: EPA


Mynd: EPA
Napoli er að vinna í því að framlengja samning Scott McTominay við félagið. Aurelio De Laurentiis, forseti félagsins, vill taka af allan vafa um framtíð hans.
Skoski landsliðsmaðurinn hefur verið ómissandi hluti af liðinu síðan hann gekk til liðs við Napoli frá Man Utd árið 2024. Hann var í lykilhlutverki þegar liðið vann deildina í fyrra.
Skoski landsliðsmaðurinn hefur verið ómissandi hluti af liðinu síðan hann gekk til liðs við Napoli frá Man Utd árið 2024. Hann var í lykilhlutverki þegar liðið vann deildina í fyrra.
Calciomercato greinir frá því að hann muni setjast niður með stjórninni á næstu dögum til að ræða samningsmál. Núgildandi samningur hans rennur út árið 2028.
Það er áhugi á McTominay frá félögum sem eru tilbúin að rífa upp veskið til að næla í miðjumanninn.
Það er áhugi á McTominay frá félögum sem eru tilbúin að rífa upp veskið til að næla í miðjumanninn.



