Fotbolti.net
29.08.19 - 22:04
Brynja Dögg Sigurpálsdóttir

Elín Metta: Allir á völlinn!

Auglýsing
Elín Metta fagnar hér seinna marki sínu.

Elín Metta fagnar hér seinna marki sínu.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Icelandair
„Mér fannst seinni hálfleikur sérstaklega góður og svo margt sem við getum lært af þessum fyrri hálfleik, en yfir allt þá eru þetta bara frábær þrjú stig“, sagði Elín Metta sem skoraði tvö mörk og lagði upp eitt í 4-1 sigri Íslands gegn Ungverjalandi í kvöld. Leikurinn var fyrsti leikur Íslands í undankeppni EM.
„Mér fannst við vera að nýta opnanirnar sem þær voru að bjóða upp á. Mér fannst við svolítið vera að flækja fyrir okkur á köflum í fyrri hálfleik en þegar við fórum að spila upp á okkar styrkleika og þeirra veikleika þá fannst mér þetta koma.“

Jón Þór gerði tvöfalda skiptingu á 60. mínútu þegar Svava og Fanndís komu inn. Elín var að vonum ánægð með liðsfélaga sína, en Svava átti einmitt þá stoðsendingu.

„Ég bjóst alveg eins við því að hún myndi skjóta, en ég var mjög ánægð að hún skyldi senda hann. Þetta var mjög góð sending. Bæði Svava og Fanndís fannst mér bara breyta leiknum og mjög ánægð með þeirra innkomu.“

Næsti leikur Íslands er á Laugardalsvelli næstkomandi mánudag, gegn Slóvakíu.

„Mér finnst við geta tekið margt úr sérstaklega seinni hálfleik og tekið það sjálfstraust með okkur inn í næsta leik, þannig ég er bara bjartsýn á framhaldið. Ég held þetta verði bara mjög svipað, við fáum smá frí á morgun þar sem við getum verið með fjölskyldunni og svo förum við aftur inn á hótel og höldum áfram undirbúningi.“

„Allir að drífa sig á völlinn, það var góð stemming í dag og fólk er að missa af því!“ sagði Elín Metta að lokum. Viðtalið í heild má sjá í spilaranum hér að ofan.

Við hvetjum fólk til að fjölmenna á leikinn á mánudaginn og sýna stelpunum stuðning.
Smelltu hér til að kaupa miða á leikinn við Slóvakíu
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.