29.10.26 - 09:30
Brynjar Ingi Erluson
Hunsa símtöl nýja landsliðsþjálfarans

Sergen Yalcin

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Sergen Yalcin

Mynd: EPA
Nokkrir leikmenn tyrkneska landsliðsins neita að svara símtölum frá Sergen Yalcin, nýjum landsliðsþjálfara Tyrklands, en frá þessu greina tyrkneskir fjölmiðlar.
Vincenzo Montella var látinn taka pokann sinn eftir að hafa tapað öllum fjórum leikjunum í Þjóðadeildinni í síðasta landsliðsverkefni og var Yalcin ráðinn í hans stað.
Yalcin hefur hins vegar ekki fengið neina draumabyrjun í starfi og á nú í miklum vandræðum með að ná sambandi við nokkra leikmenn landsliðsins.
Blaðamaðurinn Sercan Hamzaoglu segir að leikmennirnir vilji ekkert með nýja landsliðsþjálfarann hafa.
„Ég er óvænt á milli aðila í mjög alvarlegu máli innan landsliðsins. Sergen Yalcin og aðstoðarmenn hans hafa reynt að ná sambandi við tvo til þrjá leikmenn sem eru fastamenn í byrjunarliðinu, en þeir svara ekki símanum. Ástæðan er gróft orðbragð Yalcin í garð leikmannanna frá þeim tíma þegar hann starfaði sem sérfræðingur í sjónvarpi,“ sagði Hamzaoglu.
Hamzaoglu segir jafnframt að einn leikmannanna hafi útskýrt fyrir honum hvers vegna hann neiti að svara símtölum frá Yalcin.
„Ég hunsa símtölin hans. Hann er mér einskis virði. Hvað með það þótt hann sé landsliðsþjálfarinn? Maður sem móðgar mig með þessum hætti í sjónvarpi getur ekki verið þjálfarinn minn,“ á einn landsliðsmaðurinn að hafa sagt.
Landsliðshópurinn verður kynntur á næstunni og verður fróðlegt að sjá hvort Yalcin ákveði að skilja þessa tvo til þrjá leikmenn eftir heima eða reyni að ná sáttum við þá á næstu vikum.