28.10.26 - 22:24
Brynjar Ingi Erluson
Besti leikmaður heims á bekknum í stórsigri Bæjara - Olise skoraði tvö

Harry Kane sat á bekknum í 6-1 stórsigri Bæjara

Mynd: EPA

Harry Kane, besti leikmaður heims, horfði á liðsfélaga sína í Bayern München slátra Magdeburg, 6-1, í annarri umferð þýska bikarsins í kvöld.
Kane tók við Ballon d'Or-verðlaununum á mánudagskvöldið og fékk verðskuldaða hvíld gegn B-deildarliðinu Magdeburg, en var þó til taks á varamannabekknum.
Michael Olise, sem hafnaði í níunda sæti í kjörinu um Ballon d'Or, fór á kostum í leiknum, skoraði tvö mörk og lagði upp eitt.
Ismael Saibari, Alphonso Davies, Nathaniel Brown og David Daiber komust einnig á blað.
Allt fór því eftir bókinni á Allianz-leikvanginum, en í öðrum leikjum vann Bayer Leverkusen 5-2 sigur á Nürnberg og Deniz Undav reyndist hetja Stuttgart í 1-0 sigri á Paderborn. Undav skoraði sigurmarkið undir lok leiksins.
Stefán Teitur Þórðarson kom þá inn af bekknum hjá Hannover sem tapaði 2-0 fyrir Kaiserslautern.