Fotbolti.net
29.10.26 - 08:40
Elvar Geir Magnússon

Siggi Raggi: Óspennandi við Færeyjar hversu einangraður maður er

Siggi Raggi ásamt vini sínum, Gunnari Einarssyni.

Siggi Raggi ásamt vini sínum, Gunnari Einarssyni.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sigurður Ragnar Eyjólfsson náði frábærum árangri með NSÍ Runavík og gerði liðið að Færeyjameisturum en óvíst er hvort hann haldi áfram. Hann segir helsta ókostinn við að vera í Færeyjum hversu einangraður hann sé utan leikja og æfinga.

„Börnin mín og vinir eru ekki hjá mér og þá einangrast maður þegar það eru ekki æfingar. Ég sakna barnanna minna og áhugamálanna, það er til dæmis enginn golfvöllur í Færeyjum. Þetta var sérstaklega erfitt í þriggja vikna landsleikjahléinu," segir Siggi Raggi í viðtali við Morgunblaðið.

„Ég hef þurft að færa miklar fórnir og ég hef til dæmis bara séð 12 ára strákinn minn í tvær til þrjár vikur á þessu ári. Ég upplifi ekki að ég sé neitt rosalega góður pabbi núna og það gerir þetta erfitt.“

NSÍ vill framlengja samstarfið við Sigga Ragga sem segist ætla að gefa sér góðan tíma í að skoða sín mál og ræða við börnin sín. Hann vill skoða möguleika sína á Íslandi og jafnvel í öðrum löndum.
Formaður NSÍ: Yrði miður að halda ekki Sigga Ragga
TENGT EFNI

Formaður NSÍ: Yrði miður að halda ekki Sigga Ragga

„Að vera nálægt börnunum sínum, vinum og áhugamálum er ákjósanlegast og það sem er óspennandi við það að vera í Færeyjum er hversu einangraður maður er," segir Sigurður Ragnar Eyjólfsson.

Heimild: Morgunblaðið

Siggi Raggi: Óspennandi við Færeyjar hversu einangraður maður er
Canon

Mynd: NSÍ Runavík

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.