28.10.26 - 23:18
Brynjar Ingi Erluson
Tómas Bent átti góðan leik gegn Rangers

Mynd: Hearts

Mynd: Hearts
Eyjamaðurinn Tómas Bent Magnússon var í byrjunarliði Hearts sem gerði 2-2 jafntefli við Rangers í skosku úrvalsdeildinni í kvöld.
Tómas Bent hefur unnið sér sæti á ný í byrjunarliði Hearts eftir að hafa verið inn og út úr liðinu í upphafi tímabilsins.
Hann var á miðjunni í toppslagnum gegn Rangers í kvöld og var meðal bestu manna Hearts.
Fotmobgaf honum 7,2 í einkunn fyrir frammistöðuna.
Hearts er áfram í þriðja sæti deildarinnar, nú með 20 stig, fjórum stigum á eftir Rangers sem situr í öðru sæti.
Eyþór Martin Björgólfsson sat á meðan allan tímann á varamannabekk Motherwell sem gerði 2-2 jafntefli við St. Johnstone. Motherwell er í tíunda sæti með níu stig.