Fotbolti.net
29.10.26 - 07:50
Elvar Geir Magnússon

Everton orðað við Orra Stein og Rashford - Camara til Liverpool?

Marcus Rashford.

Marcus Rashford.

Canon

Mynd: EPA

Powerade
Góðan og gleðilegan daginn. Everton vill styrkja sóknarlínu sína og er orðað við fyrirliða íslenska landsliðsins. Þetta og ýmislegt fleira í slúðurpakka dagsins í boði Powerade.
Everton íhugar að reyna að fá Marcus Rashford (28), sóknarmann Manchester United og enska landsliðsins, í komandi janúarglugga. Rashford er samningsbundinn United til 2028. (Football Insider)

Everton hyggst styrkja sóknarlínuna og fylgist einnig með íslenska sóknarmanninum Orra Steini Óskarssyni (22), sem leikur með Real Sociedad. (Teamtalk)

Orri orðaður við fimm lið í ensku úrvalsdeildinni
TENGT EFNI

Orri orðaður við fimm lið í ensku úrvalsdeildinni


Liverpool er í sambandi við Lamine Camara (22), miðjumann Mónakó og senegalska landsliðsins, en hann var nálægt því að ganga til liðs við Chelsea í sumar. (Sun)

Enski kantmaðurinn Jadon Sancho (26) hefur hafnað tilboði frá spænska félaginu Getafe. Hann hefur verið án félags síðan hann yfirgaf Manchester United í sumar en hefur fengið tilboð frá Sádi-Arabíu. (Marca – á spænsku)

Paris St-Germain er í viðræðum við Désiré Doué (21) um nýjan samning. Evrópumeistararnir vilja tryggja sér krafta hans til langs tíma en Arsenal, Chelsea og Manchester City hafa sýnt honum áhuga. (Teamtalk)

Chelsea hefur enn mikinn áhuga á enska varnarmanninum Jarrad Branthwaite (24), sem leikur með Everton, en Manchester United hefur einnig sýnt honum áhuga. (Football Insider)

Chelsea íhugar að reyna að fá spænska miðjumanninn Fermín López (23), sem leikur með Barcelona, ??en Paris St-Germain hefur einnig áhuga. (CaughtOffside)

Leeds United mun reyna að fá nígeríska vinstri bakvörðinn Zaidu Sanusi (29), sem leikur með Porto, í janúar. (Football Insider)

Arsenal, Manchester United og Chelsea eru meðal þeirra félaga sem fylgjast með miðjumanninum Nico Paz (22) hjá Como, þótt ítalska félagið hafi engan áhuga á að selja þennan argentínska landsliðsmann. (Teamtalk)
Lamine Camara í landsleik með Senegal.

Lamine Camara í landsleik með Senegal.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.