Fotbolti.net
29.10.26 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson

Rogers: Líklega versta leiðin til að tapa leik

Rogers: Líklega versta leiðin til að tapa leik
Canon

Mynd: EPA

Morgan Rogers, leikmaður Chelsea, segist vera gríðarlega svekktur eftir að lið hans féll úr leik í enska deildabikarnum á Anfield í gær.
Enski deildabikarinn: Liverpool í átta liða úrslit eftir dramatískan sigur á Chelsea
TENGT EFNI

Enski deildabikarinn: Liverpool í átta liða úrslit eftir dramatískan sigur á Chelsea

Rogers skoraði úr vítaspyrnu í leiknum, en aðeins nokkrum mínútum síðar jafnaði Cody Gakpo metin fyrir Liverpool.

Ekki tókst að knýja fram úrslit á venjulegum leiktíma og því þurfti að grípa til vítakeppni þar sem Liverpool hafði betur eftir bráðabana.

Englendingurinn var eðlilega afar svekktur þegar hann ræddi við fjölmiðla eftir leikinn.

„Þetta er líklega versta leiðin til að tapa leik.“

„Þetta var jafn leikur og á köflum vorum við betra liðið. Ég fékk nokkur hálffæri sem ég hefði viljað nýta betur.“

„Þetta var einn af þessum leikjum sem hefðu getað farið á hvorn veginn sem er, en maður verður bara að sætta sig við niðurstöðuna,“
sagði Rogers í gær.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.