28.10.26 - 22:40
Brynjar Ingi Erluson
Dregið í deildabikarnum - Liverpool og Man City aftur á heimavelli

Liverpool mætir Bournemouth

Mynd: EPA

Liverpool mætir Bournemouth

Mynd: EPA
Dregið var í átta liða úrslit enska deildabikarsins í kvöld og ljóst er að nokkrir stórskemmtilegir leikir eru fram undan.
Fimm lið tryggðu sér sæti í átta liða úrslitum enska deildabikarsins í kvöld, en það voru Bournemouth, Crystal Palace, Liverpool, Manchester City og Sunderland.
Þau bætast þar með í hóp Fleetwood Town og Bradford City sem unnu sína leiki í gær.
Enn á eftir að spila einn leik í 16-liða úrslitunum, en Everton tekur á móti Newcastle United á morgun.
Tveir úrvalsdeildarslagir eru á dagskrá í átta liða úrslitunum. Andoni Iraola og lærisveinar hans í Liverpool fá hans gömlu félaga í Bournemouth í heimsókn á Anfield, en Crystal Palace mætir Sunderland.
Manchester City, ríkjandi deildabikarmeistarar, mæta C-deildarliði Bradford City, á meðan D-deildarlið Fleetwood Town leikur gegn annaðhvort Everton eða Newcastle United.
Þetta verður þriðji bikarleikurinn í röð sem Liverpool og Man City spila heima.
Leikirnir fara fram 15. - 17. desember næstkomandi.
Drátturinn:
Fleetwood Town - Everton/Newcastle United
Liverpool - Bournemouth
Crystal Palace - Sunderland
Manchester City - Bradford City