Fotbolti.net
29.10.26 - 10:00
Elvar Geir Magnússon

Bosníski múrinn ein bestu kaup tímabilsins

Tarik Muharemovic.

Tarik Muharemovic.

Canon

Mynd: EPA

Bosníumaðurinn Tarik Muharemovic varð í sumar dýrasti varnarmaður í sögu Leeds þegar hann var keyptur frá ítalska liðinu Sassuolo fyrir rúmlega 34 milljónir punda.

Þegar þessi 23 ára leikmaður var keyptur efuðust sumir stuðningsmenn um kaupverðið, enda hafði kappinn aðeins spilað eitt tímabil í einni af helstu deildum Evrópu.
Nú, þremur mánuðum eftir að hann skrifaði undir fimm ára samning, er farið að ræða um hversu lengi Leeds geti haldið honum innan sinna raða. Frammistaða hans hefur verið svo öflug síðan hann kom til félagsins en hann var einnig þrusugóður á HM með Bosníu og Hersegóvínu.

„Muharemovic hefur staðið sig svo vel að önnur félög eru eflaust nú þegar farin að fylgjast með honum,“ segir Lucy Ward, fyrrverandi sóknarmaður Leeds United.

Slúðurmiðlar segja að félög á borð við Barcelona, ??Liverpool, Bayern München og Inter sýni Muharemovic áhuga. Hann hefur hlotið mikið lof fyrir kraftmikinn varnarleik sinn og styrk í loftinu, bæði í vörn og sókn.

Stuðningsmennirnir hafa tekið ástfóstri við hann og kalla hann „Bosníska múrinn“. Hann hefur átt þátt í því að Leeds er með næststerkustu vörnina í ensku úrvalsdeildinni, á eftir ríkjandi meisturum Arsenal.

„Muharemovic er kannski ekki fullmótaður leikmaður ennþá, en verður nafn hans nefnt þegar rætt verður um bestu kaup tímabilsins í ensku úrvalsdeildinni?" skrifar Neil Johnston, fréttamaður BBC.
Bosníski múrinn ein bestu kaup tímabilsins
Canon

Mynd: Leeds

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Man City8+1121
2Arsenal8+821
3Brighton8+1616
4Liverpool8+315
5Chelsea8+213
6Brentford8+511
7Leeds8+311
8Newcastle8-211
9Aston Villa8-311
10Hull City8+110
11Everton8-110
12Ipswich Town8-410
13Bournemouth8-19
14Tottenham8-29
15Fulham8-28
16Man Utd8-37
17Crystal Palace8-107
18Nott. Forest8-46
19Coventry8-96
20Sunderland8-85
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.