28.10.26 - 21:19
Brynjar Ingi Erluson
Tvö Íslendingalið áfram í bikarnum

Daníel Leó spilaði í sigri AGF á Roskilde

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Tvö lið með íslenska leikmenn innanborðs tryggðu sér sæti í næstu umferð bikarkeppna í Evrópu nú rétt í þessu.
AGF vann 2-1 sigur á Roskilde í 16-liða úrslitum danska bikarsins, en þar var um Íslendingaslag að ræða.
Bjarni Aðalsteinsson var á bekknum hjá Roskilde á meðan Daníel Leó Grétarsson byrjaði hjá AGF.
Tómas Óli Kristjánsson sat allan tímann á varamannabekk AGF, en Mikael Neville Anderson var ekki með liðinu.
Ágúst Orri Þorsteinsson kom þá inn af bekknum og lék síðasta hálftímann hjá Excelsior sem vann öruggan 3-0 sigur á Maastricht í 64-liða úrslitum hollenska bikarsins.