29.10.26 - 08:30
Brynjar Ingi Erluson
Mögnuð tölfræði Liverpool gegn Chelsea

Mynd: EPA

Fofana skaut hátt yfir markið

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Liverpool tryggði sér sæti í átta liða úrslitum enska deildabikarsins með sigri á Chelsea eftir bráðabana í vítakeppni á Anfield í gær, en sigurinn var merkilegur fyrir þær sakir að enn á ný hafði Liverpool betur gegn Chelsea í vítakeppni.

TENGT EFNI
Sjáðu mörkin: Liverpool áfram eftir æsispennandi vítakeppni
Eftir jafnan og spennandi fótboltaleik þurfti að grípa til vítakeppni til að knýja fram úrslit, en það er kannski ekkert skrýtið að Chelsea-menn hafi ekki verið sérstaklega hrifnir af þeirri niðurstöðu.
Málið er nefnilega það að Liverpool hafði unnið allar vítakeppnir sínar gegn Chelsea í gegnum tíðina. Liðin mættust fyrst í vítakeppni í undanúrslitum Meistaradeildarinnar árið 2007, þar sem Liverpool hafði betur með sannfærandi hætti.
Árið 2019 áttust liðin aftur við í úrslitum Ofurbikars Evrópu og enn hafði Liverpool betur, þá 7-6. Adrian varði sjöundu spyrnu Chelsea frá Tammy Abraham með fótunum og tryggði Liverpool titilinn.
Árið 2022 er síðan ár sem stuðningsmenn Chelsea vilja líklega helst gleyma. Liðin mættust í úrslitum deildabikarsins þar sem Liverpool vann eftir ótrúlega vítakeppni, 11-10. Kepa Arrizabalaga, markvörður Chelsea, varð þar skúrkurinn þegar hann þrumaði sinni spyrnu hátt yfir markið, en hann hafði einnig staðið í marki Chelsea í vítakeppninni árið 2019.
Um vorið mættust liðin aftur í úrslitum, nú í enska bikarnum, og enn fór Liverpool með sigur af hólmi, í þetta sinn 6-5. Cesar Azpilicueta klúðraði sinni spyrnu og Sadio Mane brást sömuleiðis bogalistin þegar hann tók fimmtu spyrnu Liverpool. Alisson varði hins vegar frá Mason Mount í bráðabana áður en Kostas Tsimikas steig á punktinn og tryggði Liverpool bikarinn.
Fimmti sigur Liverpool í vítakeppni gegn Chelsea kom svo í 16-liða úrslitum deildabikarsins í gær. Þar varð Wesley Fofana skúrkurinn þegar hann þrumaði boltanum hátt yfir markið í bráðabana.
Það virðist hreinlega hvíla einhver bölvun yfir Chelsea þegar kemur að vítakeppnum gegn Liverpool, en Lundúnaliðið bíður enn eftir sínum fyrsta sigri í vítakeppni gegn þeim rauðu.

Liverpool have won ALL FIVE of their penalty shootouts against Chelsea:
— Squawka (@Squawka) October 28, 2026
? Champions League (2006/07)
? UEFA Super Cup (2019/20)
? League Cup (2021/22)
? FA Cup (2021/22)
? League Cup (2026/27)
The perfect run continues. ???? https://t.co/8nizrUI4xa

Fofana skaut hátt yfir markið

Mynd: EPA