28.10.26 - 22:17
Brynjar Ingi Erluson
Enski deildabikarinn: Liverpool í átta liða úrslit eftir dramatískan sigur á Chelsea

Liverpool er komið í 8-liða úrslit

Mynd: EPA

Wesley Fofana fékk á sig víti og klúðraði síðan í bráðabana í vítakeppninni

Mynd: EPA

Mamardashvili varði eina vítaspyrnu í vítakeppninni

Mynd: EPA

Liverpool er komið í 8-liða úrslit

Mynd: EPA
Liverpool 1 - 1 Chelsea (6-5 eftir vítakeppni)
0-1 Morgan Rogers ('40 , víti)
1-1 Cody Gakpo ('43 , víti)
0-1 Morgan Rogers ('40 , víti)
1-1 Cody Gakpo ('43 , víti)
Liverpool er komið áfram í 8-liða úrslit enska deildabikarsins eftir að hafa unnið Chelsea eftir bráðabana í vítakeppni á Anfield í kvöld.
Það var fátt um fína drætti fyrstu tuttugu mínúturnar eða svo, en á 24. mínútu kom upp umdeilt atvik.
Morgan Rogers keyrði inn í vítateiginn með Ronald Araujo á hælunum og féll við eftir viðskipti þeirra. Darren England, dómari leiksins, lét hins vegar leikinn halda áfram. Rogers virtist fara fullauðveldlega niður, en ekki var hægt að skoða atvikið betur þar sem VAR er ekki notað í fyrstu umferðum keppninnar.
Fjórtán mínútum síðar féll Moises Caicedo við eftir tæklingu Ryan Gravenberch innan vítateigs. Í þetta sinn benti England á punktinn og Gravenberch gat lítið mótmælt enda tæklingin glórulaus hjá honum.
Morgan Rogers steig á punktinn og skoraði af miklu öryggi, en Adam var ekki lengi í Paradís.
Aðeins tveimur mínútum síðar fengu Liverpool-menn nefnilega vítaspyrnu þegar Wesley Fofana handlék boltann í teignum eftir hornspyrnu og England benti aftur á punktinn.
Cody Gakpo tók ábyrgðina á sig og renndi boltanum alveg út við stöng á meðan Mike Penders kastaði sér í hina áttina.
Bæði lið fengu góð tækifæri til að skora í síðari hálfleiknum. Rogers og Marco Palestra komust næst því fyrir Chelsea, en Mamardashvili var vel á verði og bjargaði Liverpool með góðum markvörslum.
Bradley Barcola og Ronald Araujo voru sömuleiðis hættulegir hjá Liverpool. Araujo átti skalla sem Penders varði vel og markvörðurinn gerði sér svo lítið fyrir og varði einnig gott skot frá Barcola.
Levi Colwill kom þá í veg fyrir að Florian Wirtz næði að skora. Bæði lið sóttu til sigurs og vildu ólm forðast vítakeppni, en sigurmarkið lét á sér standa og því þurfti að grípa til vítaspyrnulotterísins til að knýja fram úrslit.
Þar hafði Liverpool betur, 6-5, eftir bráðabana. Í bráðabananum skoraði Joe Gomez af öryggi en Fofana, sem fékk á sig vítaspyrnu fyrr í leiknum, skaut sinni spyrnu hátt yfir markið og er það því Liverpool sem fer í 8-liða úrslitin.
Vítakeppnin:
1-0 Alexis Mac Allister
1-1 Pedro Neto
2-1 Alexander Isak
2-2 Morgan Rogers
3-2 Cody Gakpo
3-3 Romeo Lavia
4-3 Florian Wirtz
4-3 Valentin Barco klúðrar
4-3 Kostas Tsimikas klúðrar
4-4 Jordan Henderson
5-4 Bradley Barcola
5-5 Levi Colwill
5-5 Mike Penders ver frá Ryan Gravenberch
5-5 Giorgio Mamardashvili ver frá Emmanuel Emegha
6-5 Joe Gomez
6-5 Wesley Fofana klúðrar