Fotbolti.net
28.10.26 - 16:38
Elvar Geir Magnússon

ÍA búið að ganga frá ráðningu á Heimi

Heimir Guðjónsson.

Heimir Guðjónsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Samkvæmt heimildum Fótbolta.net hefur ÍA gengið frá ráðningu á Heimi Guðjónssyni sem tekur við liðinu af Lárusi Orra Sigurðssyni sem var látinn fara eftir nýaafstaðið tímabil.

ÍA hefur verið í viðræðum við Fylki til að losa Heimi og það hefur nú tekist. Beðið er eftir formlegri tilkynningu frá Skagamönnum.

Heimir tók við Fylki fyrir ári síðan en liðið tapaði gegn Þrótti í úrslitaleik umspils Lengjudeildarinnar og komst ekki upp um deild.

ÍA endaði í fjórða sæti Bestu deildarinnar í sumar og athygli vakti að félagið ákvað að halda ekki áfram með Lárus Orra við stjórnvölinn.
Ólafur Ingi Skúlason sem var rekinn frá Breiðabliki í gær er talinn líklegastur sem næsti þjálfari Fylkis en Sigurður Ragnar Eyjólfsson, Aron Baldvin Þórðarson og Davíð Smári Lamude eru meðal nafna sem einnig hafa verið nefnd.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.