Fotbolti.net
28.10.26 - 22:35
Brynjar Ingi Erluson

Meistaradeild kvenna: Lyon of stór biti fyrir Cecilíu og Karólínu

Vicki Becho skoraði þrjú á Cecilíu

Vicki Becho skoraði þrjú á Cecilíu

Canon

Mynd: EPA

MeistaradeildKvennaboltinn
Íslendingalið Inter steinlá 6-0 gegn Lyon í deildarkeppni Meistaradeildar Evrópu í kvennaflokki í kvöld.
Lyon er sigursælasta félag í sögu Meistaradeildarinnar og hefur unnið titilinn átta sinnum.

Franska stórliðið reyndist einfaldlega of stór biti fyrir Inter, en framherjinn Marie-Antoinette Katoto skoraði tvívegis í fyrri hálfleik.

Í þeim síðari bætti Lily Yohannes við marki áður en Vicki Becho stal senunni með því að skora þrennu á rúmum tuttugu mínútum.

Cecilía Rán Rúnarsdóttir stóð á milli stanganna hjá Inter og Karólína Lea Vilhjálmsdóttir var á miðjunni.

Lyon er á toppi deildarinnar með sjö stig en Inter situr í sjöunda sæti með fjögur stig.

Alessia Russo fór þá á kostum hjá Arsenal og skoraði öll þrjú mörk liðsins í öruggum 3-0 sigri á Benfica.

Arsenal er í öðru sæti með sjö stig en Benfica situr í ellefta sæti með þrjú stig.

Arsenal 3 - 0 SL Benfica
1-0 Alessia Russio ('39 )
2-0 Alessia Russo ('66 )
3-0 Alessia Russo ('79, víti )

Lyon 6 - 0 Inter
1-0 Marie-Antoinette Katoto ('18 )
2-0 Marie-Antoinette Katoto ('45 )
3-0 Lily Yohannes (´59 )
4-0 Vicki Becho ('69 )
5-0 Vicki Becho ('76 )
6-0 Vicki Becho ('90 )
Russo skoraði þrennu fyrir Arsenal

Russo skoraði þrennu fyrir Arsenal

Canon

Mynd: EPA

Cecilía og Karólína voru báðar í byrjunarliði Inter

Cecilía og Karólína voru báðar í byrjunarliði Inter

Canon

Mynd: Inter

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.