Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   þri 29. nóvember 2022 09:40
Elvar Geir Magnússon
Rodrygo reyndi að ná í töfra frá fótleggjum Ronaldo
Mynd: Getty Images
Brasilíumenn hafa unnið báða leiki sína til þessa á HM og það er mikill léttleiki innan hópsins.

Rodrygo, 21 árs leikmaður Real Madrid, sló á létta strengi þegar hann fór í viðtal við sjálfan Ronaldo eftir sigur Brasilíu gegn Sviss í gær.

Hinn brasilíski Ronaldo var svo sannarlega með töfra í fótunum og fór á kostum þegar Brasilía varð heimsmeistari 2002.

Eftir viðtalið reyndi Rodrygo að ná í einhvern töframátt frá Ronaldo eins og sjá má í myndbandinu hér að neðan.



Athugasemdir
banner
banner
banner