Fotbolti.net
28.11.26 - 17:09
Brynjar Ingi Erluson

Championship: Langþráður sigur Burnley - Miðvörður í hópi markahæstu manna

Burnley náði í sinn fyrsta sigur í rúman mánuð

Burnley náði í sinn fyrsta sigur í rúman mánuð

Canon

Mynd: EPA

Fallbaráttulið Burnley vann langþráðan sigur í ensku B-deildinni í dag.
Burnley hafði ekki unnið leik síðan í október og var Nicky Hayen látinn taka pokann sinn í kjölfar slaks gengis.

Fabio Celestini tók við stjórn liðsins og tókst að koma því aftur á sigurbraut, en hollenski framherjinn Jaydon Banel skoraði sigurmarkið þegar um hálftími var eftir af leiknum.

Burnley er þó enn í fallsæti, eða því 22. með 14 stig, tveimur stigum frá öruggu sæti.

WBA vann 1-0 sigur á Bristol City og skaust upp í þriðja sæti deildarinnar með 35 stig.

West Ham marði þá 1-0 sigur á Stoke. Kostas Mavropanos skoraði sigurmarkið tuttugu mínútum fyrir leikslok með skalla eftir hornspyrnu. Það var sjöunda deildarmark hans á tímabilinu og er hann með markahæstu mönnum deildarinnar.

Hamrarnir eru nú í níunda sæti með 27 stig.

Öll úrslit dagsins má sjá hér fyrir neðan.

Birmingham 2 - 4 Bolton
1-0 Christoph Klarer ('8 )
1-1 Samuel Iling-Junior ('43 )
1-2 Ruben Rodrigues ('51 )
2-2 August Priske ('56 )
2-3 Atsuki Ito ('84 )
3-3 Ethan Laird ('90 , sjálfsmark)
Rautt spjald: James Beadle, Birmingham ('28)

Derby County 0 - 0 Watford

Millwall 0 - 1 Burnley
0-1 Jaydon Banel ('59 )

QPR 1 - 1 Sheffield Utd
0-1 Patrick Bamford ('2 )
1-1 Rumarn Burrell ('69 )
Rautt spjald: Kalvin Phillips, Sheffield Utd ('77)

West Brom 1 - 0 Bristol City
1-0 Jimmy-Jay Morgan ('79 )
Rautt spjald: Lisav Eissat, Bristol City ('45)

West Ham 1 - 0 Stoke City
1-0 Konstantinos Mavropanos ('71 )

Wrexham 1 - 0 Portsmouth
1-0 Callum Doyle ('8 )
Mavropanos hefur skorað sjö deildarmörk á tímabilinu

Mavropanos hefur skorað sjö deildarmörk á tímabilinu

Canon

Mynd: EPA

Championship - karlar

#LiðLmunStig
1Stoke City18+836
2Middlesbrough18+1235
3Wolves18+1235
4Birmingham18+1533
5West Brom18+1033
6Southampton18+1831
7Sheffield Utd18+729
8QPR18+628
9Blackburn18+128
10Swansea17+327
11Norwich18+926
12Portsmouth18+226
13West Ham18+1325
14Wrexham18025
15Charlton Athletic18-820
16Bristol City18-1020
17Millwall18-619
18Bolton18-1119
19Cardiff City17-518
20Watford18-1516
21Lincoln City18-1616
22Preston NE18-1313
23Burnley18-1112
24Derby County18-2111
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.