Fotbolti.net
28.11.26 - 16:31
Brynjar Ingi Erluson

Þýskaland: Fyrirliði Bayern fékk rautt fyrir hártog - Ótrúleg úrslit í nýliðaslag

Kimmich sá rautt fyrir þetta

Kimmich sá rautt fyrir þetta

Canon

Mynd: EPA

Þýskalandsmeistarar Bayern München misstigu sig í dag þegar liðið gerði markalaust jafntefli við Hamburger SV í 11. umferð þýsku úrvalsdeildarinnar. Paderborn vann hins vegar ótrúlegan 8-1 stórsigur á Schalke, þann stærsta í sögu félagsins í efstu deild.
Mikil meiðsli hafa herjað á Bayern undanfarna daga og vikur, en Luis Díaz er nú eini sóknarmaður liðsins sem er heill heilsu og má félagið því illa við frekari áföllum.

Joshua Kimmich, fyrirliði Bayern, missti hins vegar stjórn á skapi sínu undir lok fyrri hálfleiks þegar hann togaði í hárið á norska miðjumanninum Alexander Rossing-Lelesiit.

Afskaplega heimskulegt hjá Kimmich að láta plata sig út í slíkt og þurftu Bæjarar að spila manni færri það sem eftir lifði leiks.

Þeim tókst ekki að tryggja sér stigin þrjú og sitja því áfram í öðru sæti deildarinnar með 23 stig, einu stigi á eftir toppliði Borussia Dortmund.

Ísak Bergmann Jóhannesson og félagar hans í Köln unnu þá frábæran 5-0 stórsigur á nýliðum Elversberg.

Ísak byrjaði á varamannabekknum hjá Köln, rétt eins og Cole Campbell hjá Elversberg.

Marius Bulter og Said El Mala skoruðu báðir tvennu áður en Ísak kom inn á á 66. mínútu. Nokkrum mínútum síðar fullkomnaði Bulter þrennuna og gulltryggði stórsigurinn.

Cole hafði þá komið inn á hjá Elversberg nokkrum mínútum á undan Ísaki.

Köln fagnaði því sannfærandi sigri og situr nú í áttunda sæti með 13 stig. Elversberg er í ellefta sæti með jafnmörg stig, en lakari markatölu.

Paderborn vann einnig sögulegan stórsigur þegar liðið burstaði Schalke 8-1 í nýliðaslag.

Stefano Marino skoraði meðal annars þrennu, en þetta er langstærsti sigur Paderborn í sögu félagsins í þýsku úrvalsdeildinni.

Fyrra metið var 3-0 sigur á Hamburger tímabilið 2014-2015.

Það sem gerir sigurinn enn ótrúlegri er að Paderborn hafði aðeins skorað átta mörk í deildinni fyrir leikinn.

Paderborn situr í tíunda sæti deildarinnar með 13 stig.

Koln 5 - 0 Elversberg
1-0 Marius Bulter ('8 )
2-0 Said El Mala ('16 )
3-0 Marius Bulter ('39 )
4-0 Marius Bulter ('63 )
5-0 Said El Mala ('68 )

Mainz 1 - 1 Union Berlin
0-1 Janik Haberer ('37 )
1-1 Phillip Tietz ('85 )

Hamburger 0 - 0 Bayern
Rautt spjald: Joshua Kimmich, Bayern ('44)

Paderborn 8 - 1 Schalke 04
1-0 Jano ter Horst ('21 )
2-0 Stefano Marino ('39 )
3-0 Stefano Marino ('45 )
4-0 Steffen Tigges ('55 )
5-0 Stefano Marino ('57 )
5-1 Adil Aouchiche ('59 )
6-1 Deniz Zeitler ('73 )
7-1 Gabriel Vidovic ('84 , víti)
8-1 Felix Gotze ('90 )
Paderborn skoraði átta mörk!

Paderborn skoraði átta mörk!

Canon

Mynd: EPA

Ísak Bergmann spilaði í frábærum sigri Köln

Ísak Bergmann spilaði í frábærum sigri Köln

Canon

Mynd: EPA

Bundesliga - karlar

#LiðLmunStig
1Dortmund10+1024
2Bayern11+2023
3Freiburg10+1122
4RB Leipzig10+1821
5Leverkusen10+719
6Werder11+619
7Frankfurt10-415
8Köln11+113
9Stuttgart10013
10Paderborn11-213
11Elversberg11-713
12Hamburger11-1413
13Augsburg10+212
14Hoffenheim10-212
15Mainz11-410
16Union Berlin11-1710
17Schalke 0411-117
18Gladbach11-145
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.