Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fös 30. apríl 2021 21:17
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Patrick Pedersen skoraði fyrsta mark Íslandsmótsins 2021
Pedersen!
Pedersen!
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Daninn Patrick Pedersen skoraði fyrsta mark Íslandsmótsins 2021 þegar hann kom Val í 1-0 gegn ÍA á 55. mínútu leiksins. Liðin leika þessa stundina opnunarleik Íslandsmótsins.

Fyrri hálfleikur leiksins var ansi bragðdaufur en Valsmenn hafa aðeins vaknað í seinni hálfleiknum. Patrick skoraði eftir undirbúningfrá Kaj Leo.

„Valsmenn hafa stigið á bensíngjöfina og eru skyndilega komnir yfir! Varnarleikur ÍA hefur verið svo traustur hingað til en skyndilega á Kaj Leo stungusendingu, Patrick slítur sig lausan frá Arnari Má og kemst einn í gegn. Árni nær ekki að loka og Patrick klárar vel," skrifaði Elvar Geir Magnússon í beinni textalýsingu frá leiknum.

Það var Óskar Örn Hauksson sem skoraði opnunarmark mótsins í fyrra þegar hann skoraði í 0-1 útisigri KR gegn Val.

Smelltu hér til að fara í beina textalýsingu frá leiknum.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner