Tottenham hefur áhuga á Rashford - Gordon á förum frá Newcastle - Arsenal fylgist með Osimhen
   fim 30. apríl 2026 06:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Dybala á leið til Boca Juniors
Mynd: EPA
Argentíumaðurinn Paulo Dybala, sóknarmaður Roma, er á leið til argentíska félagsins Boca Juniors í sumar. ESPN greinir frá þessu.

Dybala hefur náð samkomulagi við Boca Juniors um að ganga til liðs við félagið þegar samningur hans við Roma rennur út í júní.

Hann er að klára sitt 13. tímabil á Ítalíu en hann hefur skorað þrjú mörk og lagt upp fjögur í 23 leikjum fyrir Roma á þessu tímabili.

Dybala, sem er 32 ára gamall, mun endurnýja kynnin sín við Leandro Paredes, sem gekk til liðs við Boca síðasta sumar. Þeir spiluðu saman hjá Roma frá 2023-2025.


Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey

Slapp
banner
banner
banner
banner