Á föstudaginn fer 2. deild karla af stað. Við á Fótbolta.net fengum alla þjálfara liðanna í deildinni til að spá fyrir sumarið og fengu liðin því stig frá 1-11 eftir því en ekki var hægt að spá fyrir sínu eigin liði.
Núna næst er komið að því að fara yfir liðin sem er spáð áttunda til fimmta sæti, liðunum sem er spáð um miðja deild.
Núna næst er komið að því að fara yfir liðin sem er spáð áttunda til fimmta sæti, liðunum sem er spáð um miðja deild.
8. sæti: Kormákur Hvöt (51 stig)
Sæti í fyrra: 4. sæti í 2. deild
Kormáki/Hvöt er spáð 8. sæti eftir að hafa komið öllum verulega á óvart í fyrra. Þá var liðinu spáð neðsta sæti en endaði á endanum í fjórða sæti og sýndi að það gat vel staðið í stærri liðum deildarinnar. Sá árangur breytti líka væntingunum að einhverju leyti þar sem trú þjálfara í deildinni á liðinu er talsvert meiri nú en fyrir síðasta tímabil. Undirbúningurinn fyrir sumarið hefur hins vegar verið nokkuð þungur. Liðið tapaði öllum sínum leikjum í Lengjubikarnum, þar á meðal 10-0 gegn KV úr 3. deild, og úrslitin gefa ákveðnar vísbendingar um að verkefnið fram undan verði krefjandi. Það er þó alltaf ákveðinn fyrirvari með lið utan af landi, sem eru oft lengur að ná saman hópi og koma sér í takt fyrir mót. Kormákur/Hvöt hefur áður sýnt að það getur farið fram úr væntingum þegar mest á reynir og lykillinn verður líklega að finna aftur þann kraft og samheldni sem skilaði liðinu góðum úrslitum í fyrra.
Lykilmenn: Uros Djuric og Papa Diounkou
Gaman að fylgjast með: Trausti Þór Þorgilsson
Þjálfarinn segir - Dominic Furness
„Raunveruleikinn er sá að nánast allt er á móti okkur. Við erum með minnsta hópinn og höfum haft minnstan tíma til undirbúnings.
Við höfum ekki haft heimavöll til að æfa eða spila á, á meðan beðið er eftir að grasið verði tilbúið."
„Við höfum þurft að byggja upp nánast alveg nýtt lið; Margir af okkar heimamönnum hafa staðið sig vel og tekið framförum, en við höfum reynt að fylla í skörðin og fá leikmenn alls staðar að af landinu til að koma til Blönduóss sem er ekki auðvelt verkefni."
„En það sem við höfum er sterk trú, mikill vilji og samheldni til að keppa."
7. sæti: Dalvík/Reynir (62 stig)
Sæti í fyrra: 5. sæti í 2. deild
Dalvík/Reynir er spáð 7. sæti eftir að hafa verið í efri hluta deildarinnar á síðasta tímabili. Uppbyggingin á Dalvík hefur verið jákvæð undanfarin ár og liðið vakti auðvitað mikla athygli þegar það komst upp í Lengjudeildina fyrir þremur árum. Þótt dvölin þar hafi verið stutt sýndi það að félagið hefur burði til að taka skref upp á við. Í fyrra endaði liðið í fimmta sæti 2. deildar og var tímabilið bara nokkuð fínt. Það er vonandi fyrir Dalvíkinga að grunnurinn sé til staðar og að liðið geti byggt ofan á þann árangur. Aðstæður á Dalvík eru til fyrirmyndar og geta skipt miklu máli yfir sumarið, sérstaklega ef liðið nær að skapa sterka heimavallarstemningu. Ef Dalvík/Reynir nær að halda stöðugleika og nýta sér það umhverfi sem félagið hefur byggt upp er vel raunhæft að liðið verði í baráttunni ofarlega í deildinni og láti vel að sér kveða.
Lykilmenn: Miguel Joao De Freitas Goncalves og Þröstur Mikael Jónasson
Gaman að fylgjast með: Hektor Bergmann Garðarsson
Þjálfarinn segir - Hörður Snævar Jónsson
„Spáin kemur ekki á óvart, við höfum farið í gegnum miklar breytingar á milli ára."
„Undirbúningstímabilið hefur verið krefjandi, með tvískiptan hóp og töluvert mikið af meiðslum. Hópurinn hefur mótast á síðustu dögum og er klár í slaginn. Markmið tímabilsins eru að gera betur en í fyrra, við áttum marga fína kafla en vantaði stöðugleika í frammistöðu okkar. Það er markmið sumarsins að finna þann stöðugleika og bæta spilamennsku liðsins."
„Við erum með vel mannaðan hóp sem á að geta tekist á við öll þau áföll sem geta komið upp á hverju tímabili."
„Ég get ekki betur séð en að deildin verði sterkari en á síðasta ára, sem dæmi mæta Haukar til leiks með líklega dýrasta og best mannaða lið í sögu 2. deildar á Íslandi. Ég yrði hreinlega hissa ef þeir fara ekki með fullt hús stiga upp úr deildinni. Fleiri lið eru vel mönnuð og er óþarfi að telja þau öll upp. Allir leikir í þessari deild verða alvöru próf."r
6. sæti: Þróttur Vogum (70 stig)
Sæti í fyrra: 3. sæti í 2. deild
Þrótti Vogum er spáð 6. sæti eftir afar sterkt tímabil í fyrra þar sem liðið var hársbreidd frá því að tryggja sér sæti í Lengjudeildinni. Þeir fóru alla leið í hreinan úrslitaleik gegn Grótta og um tíma yfir sumarið leit út fyrir að þeir væru á leiðinni upp um deild. Frammistaðan kom mörgum á óvart en undirstrikaði jafnframt þann metnað sem ríkir í Vogunum. Starfið hjá félaginu hefur verið til fyrirmyndar og þar vegur þungt sú vinna sem Marteinn Ægisson lagt fram sem framkvæmdastjóri. Umgjörðin í kringum liðið er sterk og það hefur skilað sér inn á völlinn á undanförnum árum. Nú tekur við nýtt tímabil í Vogunum. Eftir að hafa verið svo nálægt því að fara upp er spurning hvernig liðið bregst við og hvort það nær að halda sama dampi. Ef Þróttur Vogum nær að byggja ofan á síðasta sumar er liðið klárlega með burði til að vera áfram í toppbaráttunni, en samkeppnin er hörð.
Lykilmenn: Auðun Gauti Auðunsson og Jökull Blængsson
Gaman að fylgjast með: Eyþór Orri Ómarsson
Þjálfarinn segir - Auðun Helgason
„Þessi spá kemur ekki mikið óvart sé horft á breytingar á hópnum og úrslit í vetur sem voru okkur ekki að skapi. Spáin er í sjálfum sér eðlileg þegar horft er til þess að Haukar, Selfoss og Fjölnir eru ógnarsterk, með frábæra leikmenn í öllum stöðum og mikla reynslu sem setur þau á allt annan stall. Síðan má ekki gleyma liðum eins og KFA, Dalvík/Reyni og Víking Ó. sem mæta sterkari til leiks en í fyrra. Þrátt fyrir allt ætlum við að finna leiðir til að keppa við þessi lið og gera betur en í fyrra."
5. sæti: KFA (76 stig)
Sæti í fyrra: 6. sæti í 2. deild
KFA er spáð 5. sæti fyrir komandi keppnistímabil. Liðinu hefur ítrekað verið spáð upp um deild síðustu ár, en þegar upp er staðið hefur það setið eftir í efri hlutanum án þess að taka síðasta skrefið. Í fyrra endaði liðið í 6. sæti og var nokkuð frá þeim slag sem stefnt var á.
Þrátt fyrir það er grunnurinn sterkur og KFA hefur sýnt á köflum að það býr yfir gæðum til að keppa um að vera eitt besta lið deildarinnar. Vandamálið hefur frekar verið að halda stöðugleika yfir heilt sumar og ná að byggja ofan á góða frammistöðu í stað þess að detta niður á milli. Á hliðarlínunni er fyrrum landsliðsmaðurinn Eggert Gunnþór Jónsson sem hefur nú meiri reynslu af hlutverkinu en fyrir síðasta tímabil. Sú reynsla gæti reynst dýrmæt þegar kemur að því að halda liðinu á réttri braut þegar á móti blæs. Það virðist vera margt til staðar til að KFA geti loksins stigið upp, en eins og áður snýst það um að láta hlutina smella á réttum tíma. Ef það tekst gæti liðið verið í alvöru baráttu um sæti í Lengjudeildinni, en annars er hætt við að sagan endurtaki sig. Það er allavega kominn tími á að Austfirðir fari að taka næstu skref í fótboltanum karlamegin.
Lykilmenn: Geir Sigurbjörn Ómarsson og Marteinn Már Sverrisson
Gaman að fylgjast með: Nenni Þór Guðmundsson
Þjálfarinn segir - Eggert Gunnþór Jónsson
„Þetta kemur kannski svosem ekkert á óvart miðað við hvar við enduðum í deildinni í fyrra. Markmið okkar í ár er að vera þarna í baráttunni á toppnum og gera betur en í fyrra."
„Við höfum misst einhverja reynslu úr hópnum en ég hef séð á undirbúningstímabilinu að yngri strákarnir séu tilbúnir í stærri hlutverk í sumar og svo erum við búnir að fá nokkra spennandi leikmenn sem verður góð viðbót við hópinn."



