Fotbolti.net
30.06.23 - 13:02
Elvar Geir Magnússon

Daníel Hafsteins hugsar sér til hreyfings frá KA

Daníel Hafsteinsson.

Daníel Hafsteinsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Daníel Hafsteinsson miðjumaður KA gæti verið á förum frá félaginu samkvæmt heimildum Fótbolta.net. Daníel er 23 ára miðjumaður sem verður samningslaus um áramótin.

Önnur félög mega byrja að ræða við hann frá og með morgundeginum en samkvæmt reglum má gera það sex mánuðum áður en samningi lýkur.
Daníel ku vera að hugsa sér til hreyfings en hann er uppalinn hjá KA og hefur spilað alla fjórtán leiki liðsins í Bestu deildinni í sumar.

KA er í sjötta sæti deildarinnar og hefur gengi liðsins ekki verið eftir væntingum fyrir norðan.

Daníel lék með FH sumarið 2020 eftir að hafa verið hjá Helsingborg í Svíþjóð. Hann á leiki með yngri landsliðum Íslands og einn A-landsleik en það var vináttulandsleikur gegn Suður-Kóreu á síðasta ári, íslenski hópurinn var að stórum hluta skipað leikmönnum úr Bestu deildinni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.