Fotbolti.net
30.06.26 - 17:45
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Fernandes á leið til Tottenham - Sá dýrasti í sögu félagsins

Fernandes á leið til Tottenham - Sá dýrasti í sögu félagsins
Canon

Mynd: EPA

West Ham hefur samþykkt 85 milljón punda tilboð Tottenham í brasilíska miðjumanninn Mateus Fernandes. Sky Sports greinir frá þessu.

Man Utd hafði einnig áhuga á honum en Sky Sports segir frá því að Man Utd hafi ekki verið tilbúið að borga fyrir hann og hafði efasemdir um að hann vildi ganga til liðs við félagið.
Fernandes verður dýrasti leikmaður í sögu Tottenham. Félagið borgaði 65 milljónir punda fyrir Dominic Solanke frá Bournemouth árið 2024.

Fernandes er 21 árs en West Ham taldi hann einn besta unga leikmann úrvalsdeildarinnar á síðustu leiktíð og að hann gæti orðið jafn góður og Declan Rice sem félagið seldi til Arsenal fyrir 105 milljónir punda árið 2023.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.