Spánverjar kátir: Hef þurft að éta mikinn skít

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Spænsku landsliðsmennirnir voru í sjöunda himni eftir sigur gegn Argentínu í úrslitaleik heimsmeistaramótsins í gærkvöldi.

TENGT EFNI
Cucurella ætlar að fá sér húðflúr af De la Fuente - „Er ekki svo ljótur"
Spánverjar eru því ríkjandi Evrópu- og heimsmeistarar og gáfu leikmenn liðsins viðbrögð eftir lokaflautið í gær.
Miðjumaðurinn Rodri var valinn besti maður heimsmeistaramótsins og vonast til að vera góð fyrirmynd fyrir unga leikmenn. Hann var titlaður besti leikmaður heims þegar hann vann Ballon d'Or 2024 en sleit krossband og var frá í langan tíma.
Hann snéri aftur á völlinn í maí í fyrra en meiddist svo á ný í október og var frá keppni í rétt rúma tvo mánuði. Það er ekki mörgum leikmönnum sem tekst að ná fullum bata og endurheimta fyrri gæði sín eftir krossbandsslit.
„Ég vona að saga mín geti verið til fyrirmyndar fyrir unga leikmenn. Það er alltaf leið til baka þegar ferillinn tekur dýfu niður á við," sagði Rodri.
Kantmaðurinn Nico Williams kom inn af bekknum og gerði mjög vel í að leggja upp eina mark úrslitaleiksins í framlengingunni. Williams glímdi við meiðslavandræði á síðustu leiktíð og var meiddur í aðdraganda heimsmeistaramótsins.
„Það er ótrúlegt hvað ég hef þurft að éta mikinn skít en núna fæ ég að upplifa besta dag lífs míns," sagði Williams, sem var gríðarlega eftirsóttur í fyrrasumar en endaði á að skrifa undir mjög langan samning við Athletic Bilbao, sem gildir til 2035.
Ferran Torres kom inn af bekknum og skoraði sigurmark Spánverja í úrslitaleiknum. Hann kom við sögu í öllum leikjum heimsmeistaranna á HM.
„Ég hef þurft að þola mikla gagnrýni en örlögin gefa góða hluti til þeirra sem eiga þá skilið. Þetta er ekki sigurmarkið mitt. Þetta er sigurmarkið fyrir 47 milljónir Spánverja," sagði Torres.
Marcos Llorente hrósaði að lokum ungum leikmönnum liðsins í hástert þar sem hann segir þá ekki hafa sýnt neinar taugar fyrir úrslitaleikinn eins og þeir væru ekki meðvitaðir um það sem væri að eiga sér stað.
„Einhverjir af þessum ungu leikmönnum í liðinu, það er eins og þeir séu ekki meðvitaðir um hvað við erum að afreka. Þeir voru pollrólegir fyrir úrslitaleik HM."

Spánn bætti magnað met Ítalíu
Celebrations time for Spain. ???????? pic.twitter.com/busVsw8NVJ
— Fabrizio Romano (@FabrizioRomano) July 20, 2026

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA