Fotbolti.net
20.07.26 - 19:40
Ívan Guðjón Baldursson

Ipswich að krækja í öfluga leikmenn

Issa Diop (til vinstri).

Issa Diop (til vinstri).

Canon

Mynd: EPA

Það er nóg um að vera í herbúðum Ipswich Town þessa dagana. Úrvalsdeildarnýliðarnir eru að krækja í marga nýja leikmenn til að breikka og styrkja hópinn til að reyna að forðast fallbaráttu á næstu leiktíð.
Miðvörðurinn Issa Diop er á leið úr röðum Fulham fyrir tæpar 10 milljónir punda. Diop er landsliðsmaður Marokkó sem er aðeins með eitt ár eftir af samningi sínum við Fulham, en hann kom aðeins við sögu í 18 leikjum í öllum keppnum á síðustu leiktíð.

Diop er 29 ára og er búinn að gefa munnlegt samþykki fyrir fjögurra ára samningi hjá Ipswich. Hann hefur áður leikið fyrir West Ham og Toulouse á ferlinum.

Nýliðarnir eru einnig að kaupa tvo markverði. Kjell Scherpen, fyrrum varamarkvörð Brighton, verður aðalmarkvörður en hann kemur úr röðum belgíska félagsins Union Saint-Gilloise.

Ipswich á eftir að ná samkomulagi við Belgana um kaupverð, en talið er að 10 til 15 milljónir evra ættu að nægja.

Félagið er nær því að ná samkomulagi við hollenska félagið FC Volendam um félagaskipti fyrir Kayne van Oevelen, sem er 22 ára. Sá kostar 5 milljónir evra eftir að hafa verið aðalmarkvörður Volendam í tvö ár.

Van Oevelen er 2 metrar á hæð og mun vera varamarkvörður félagsins til að byrja með.

Þá er Abdul Fatawu að gangast undir læknisskoðun hjá Ipswich eftir þrjú ár hjá Leicester. Fatawu er 22 ára landsliðsmaður Gana með 32 landsleiki að baki.

Ipswich borgar um 20 milljónir punda fyrir kantmanninn sem var besti leikmaður Leicester á síðustu leiktíð, með 9 mörk og 8 stoðsendingar í 44 leikjum er liðið féll óvænt úr Championship deildinni.

Að lokum er Ipswich í viðræðum við Celtic um kaup á japanska landsliðsmanninum Daizen Maeda, sem er aðeins með eitt ár eftir af samningi og vill ólmur reyna fyrir sér í ensku úrvalsdeildinni.

Maeda hefur á síðustu tveimur árum komið að 72 mörkum í 105 leikjum með Celtic.

Landsliðsmaður Gana á leið til Ipswich
TENGT EFNI

Landsliðsmaður Gana á leið til Ipswich

Ipswich að krækja í öfluga leikmenn
Canon

Mynd: EPA

Ipswich að krækja í öfluga leikmenn
Canon

Mynd: EPA

Ipswich að krækja í öfluga leikmenn
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.