Spenntur að spila undir frænda sínum - „Var það rétta í stöðunni“

Farinn í FH á láni út tímabilið.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kom við sögu í sjö deildarlekjum með Víkingi fyrri hluta tímabils.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kominn með leikheimild fyrir leikinn gegn Breiðabliki í kvöld.

Mynd: FH

Spilar undir frænda sínum og nafna, Jóhannesi Karli Guðjónssyni.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Í 11. sæti deildarinnar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Farinn í FH á láni út tímabilið.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þessi 21 árs gamli miðjumaður hefur verið í litlu hlutverki hjá Víkingi framan af tímabili en hann gekk í raðir Íslandsmeistarana frá Kolding fyrir tímabil.
Fótbolti.net ræddi við Jóhannes um helgina og spurði hann út í skiptin.

Jói Bjarna í FH á láni út tímabilið (Staðfest)
Ekki svekktur en vildi spila meira
Jóhannes kom við sögu í sjö deildarleikjum með Víkingi fyrri hluta tímabils og var aðeins einu sinni í byrjunarliðinu.
Varstu svekktur með hlutverkið í Víkingi?
„Ég er ekki svekktur, en auðvitað langaði mig að spila meira og hjálpa þeim meira. Ég skil að þegar það gengur svona vel og menn eru að spila svona vel að þá er erfitt að breyta miklu. Nei, ég er ekkert svekktur og skil þetta. Mér fannst þetta vera það rétta í stöðunni fyrir mig núna.“
Spenntur að vinna undir frænda
Jóhannes er frændi nafna síns og þjálfara FH, Jóhannesar Karls Guðjónssonar.
„Mér líst mjög vel á hann sem þjálfara. Hann er með góðar hugsanir og pælingar. Ég er spenntur að spila og gera það sem hann þarf frá mér.“
Spilaðist eins og þetta spilaðist
Jóhannes var sterklega orðaður við FH áður en hann gekk í raðir Víkings í vor. Sá orðrómur var borinn undir Jóa og hann spurður hvort hann hafi verið nálægt því að ganga í raðir FH fyrir tímabil.
„Ég talaði við nokkur félög. Það var ekki niðurstaðan á þeim tíma. Síðan var planið ekki að koma heim í smá tíma og þá dó allt. Ég ætlaði ekkert að koma heim. Síðan er ég keyptur og er ánægður með það. Ég talaði við nokkur félög en svo spilaðist þetta eins og þetta spilaðist. Ég er bara ánægður að vera kominn hingað núna og hjálpa liðinu í sínu verkefni.“
Hann getur spilað sinn fyrsta leik með FH gegn Breiðabliki á mánudag.
Mæta Breiðabliki í kvöld
FH tekur á móti Breiðabliki í kvöld í Kaplakrika. Jóhannes er kominn með leikheimild og getur spilað leikinn. Þá geta þeir Oliver Stefánsson og Guðmundur Andri Tryggvason sömuleiðis spilað sinn fyrsta leik fyrir félagið eftir að hafa fengið leikheimild fyrir helgi.
„Það verður mjög gaman að spila á móti Blikum. Við ætlum að ná að stríða þeim,“ segir Jóhannes og var spurður um hvernig leikformið hjá sér væri.
„Það er gott. Ég er búinn að halda mér við meðan ég er ekki að spila. Ég er á mjög góðum stað.“
Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan

Kom við sögu í sjö deildarlekjum með Víkingi fyrri hluta tímabils.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kominn með leikheimild fyrir leikinn gegn Breiðabliki í kvöld.

Mynd: FH

Spilar undir frænda sínum og nafna, Jóhannesi Karli Guðjónssyni.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Í 11. sæti deildarinnar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


