Fotbolti.net
20.07.26 - 16:27
Elvar Geir Magnússon

Fótboltinn í Asíu þarf að fara í naflaskoðun

Úr leik hjá Úsbekistan.

Úr leik hjá Úsbekistan.

Canon

Mynd: EPA

Heimsmeistaramótinu í fótbolta lauk í gær með sigri Spánverja. Um allan heim er horft til bkak og rætt um hvaða lærdóm sé hægt að draga af mótinu.

Fyrir fótboltann í Asíu hringdu viðvörunarbjöllur, mótið var slys fyrir asískan fótbolta. Aðeins tveir af níu fulltrúum asíska fótboltasambandsins komust upp úr riðlakeppninni.

Það voru Japan og Ástralía sem féllu svo bæði út í 32-liða úrslitum.
„Fyrir utan Japan, Ástralíu og kannski Íran þá þurfa öll asísk lið að bæta sig," segir Fabio Cannavaro, landsliðsþjálfari Úsbekistans.

Af 29 leikjum sem asísk lið spiluðu á HM komu aðeins þrír sigrar; Suður-Kórea vann Tékkland, Ástralía vann óvæntan sigur gegn Tyrklandi og Japan vann Túnis.

Írak, Jórdanía, Katar, Sádi-Arabía og Úsbekistan enduðu öll í neðstu sætum sinna riðla. Staðreyndir sem ýta undir rökstuðning þeirra sem segja að Asía eigi ekki skilið fleiri sæti á HM.

Salman bin Ibrahim Al Khalifa, forseti fótboltasambands Asíu, segir að það sé mikil vinna fyrir höndum til að lið frá Asíu standist þeim bestu snúning.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.