Fotbolti.net
20.07.26 - 13:47
Kári Snorrason

Rudi Garcia hættur með Belgíu (Staðfest)

Stýrði Napoli áður en hann tók við Belgíu.

Stýrði Napoli áður en hann tók við Belgíu.

Canon

Mynd: EPA

Rudi Garcia mun ekki halda áfram sem landsliðsþjálfari Belgíu. Samningur Garcia verður ekki framlengdur en hann rennur út um mánaðarmótin.

Hann tók við belgíska liðinu í febrúar 2025 og kom liðinu á nýlokið heimsmeistaramót þar sem liðið datt úr leik gegn heimsmeisturum Spánar í 8-liða úrslitum.
Garcia fékk mikið lof fyrir endurkomusigur Belga gegn Senegal í 32-liða úrslitum. Hann tók Jeremy Doku og Kevin de Bruyne af velli í stöðunni 2-0 Senegal og tókst Belgum að snúa taflinu við eftir breytingarnar.

Þá gagnrýndi Garcia FIFA harðlega eftir að Folarin Balogun fékk leikbanni sínu aflétt fyrir leik Bandaríkjanna og Belgíu. Hann sagðist halda að um aprílgabb væri að ræða.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.