Á von á öðruvísi leik en gegn Ungverjunum - „Langar að komast lengra en í Sambandsdeildina“
Auglýsing

„Ef við komum rétt stefndir til leiks þá eigum við fullan séns.“

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Unnu einvígið gegn Györ samanlagt 3-2.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Seinni leikurinn er spilaður í Ungverjalandi, líkt og gegn Györ, vegna aðstæðna í Ísrael.

Mynd: Víkingur/Hörður Ágústsson

„Við æfðum vel í dag og horfðum aðeins á myndbönd af Ísraelunum. Við erum klárir í leikinn á morgun,“ sagði Helgi Guðjónsson, leikmaður Víkings, í félagsheimili liðsins í Fossvogi fyrr í dag.
Víkingur mætir ísraelsku meisturunum í Hapoel Be'er Sheva á Víkingsvelli í 2. umferð forkeppni Meistaradeildarinnar annað kvöld.

TENGT EFNI
Víkingar geta skrifað söguna - Allt sem þú þarft að vita um andstæðinginn og framhaldið
„Við þurfum að spila okkar bolta. Þeir spila mjög aggressívt og sérkennilega. Við þurfum að vera á tánum og pressa þá svolítið,“ segir Helgi.
Hann býst við öðruvísi leik en í fyrri leiknum gegn ungversku meisturunum. „Györ lagðist niður og komu okkur svolítið á óvart með því. Við búumst við því að þeir sækji svolítið og pressi á okkur á morgun.“
„Ég met möguleikana mjög góða, við erum vel drillaðir og vitum hvernig við eigum að spila. Ef við komum rétt stefndir til leiks þá eigum við fullan séns,“ segir Helgi.
Aðspurður um markmið í Evrópukeppnum segir Helgi liðið vilja komast inn í riðlakeppni. „Auðvitað langar okkur að komast lengra en í Sambandsdeildina og reyna við Evrópudeildina. Við erum í forkeppni Meistaradeildarinnar núna þannig við viljum halda okkur eins lengi þar og við getum,“ segir Helgi að lokum.