Opta hefur opinberað sitt úrvalslið á HM

Miðjumaðurinn Rodri var valinn besti leikmaður HM.

Mynd: EPA

Tölfræðifyrirtækið Opta hefur sett saman úrvalslið HM byggt á gögnum sínum. Þar er ýmislegt áhugavert.
Spánverjinn Unai Simon fékk aðeins eitt mark á sig á mótinu en er samt ekki í markinu. Það var öflug vörn Spánverja sem var lykillinn því Simon átti bara tíu markvörslur á mótinu.
Gregor Kobel, markvörður Sviss, er í liði mótsins hjá Opta en hann varði 20 skot og hélt tvisvar hreinu. Frammistaða hans í vítakeppni gegn Kólumbíu í 16-liða úrslitum var hápunkturinn.

TENGT EFNI
Úrvalslið HM - Stórkostleg sóknarlína
Varnarmaðurinn Pau Cubarsi hjá Spáni er í varnarlínunni en þessi 19 ára leikmaður var valinn besti ungi leikmaður mótsins.
Á miðjunni er að sjálfsögðu Rodri meðal leikmanna. Margir veltu því fyrir sér hvort hann myndi ná að sýna sínar bestu hliðar eftir krossbandaslit 2024 en hann stendur uppi með heimsmeistarabikarinn og var valinn besti maður mótsins.
Það er nokkuð áhugavert að Leandro Trossard í Belgíu komist í liðið. Hann var stórhættulegur á mótinu, skoraði tvö mörk og átti tvær stoðsendingar. Alls skapaði hann 17 færi.

Mynd: Opta