Úrvalslið HM - Stórkostleg sóknarlína

Markvörður: Vozinha (Grænhöfðaeyjar) - 40 ára stjarna fæddist á mótinu. Var maður leiksins í markalausu jafntefli gegn Spánverjum og varði eins og berserkur þegar Grænhöfðingjar töpuðu naumlega fyrir Argentínu í útsláttarkeppninni.

Mynd: EPA

Hægri bakvörður: Pedro Porro (Spánn) - Ein óvæntasta frammistaða HM kom frá bakverði Tottenham. Var framúrskarandi, skoraði geggjað liðsmark gegn Frökkum og tengdi vel við Lamine Yamal.

Mynd: EPA

Miðvörður: Dayot Upamecano (Frakkland) - Stór, sterkur, snöggur og með nákvæmni í sendingum sínum.

Mynd: EPA

Miðvörður: Aymeric Laporte (Spánn) - Yfirvegaður og öflugur. Myndaði geggjað miðvarðapar með Pau Cubarsi.

Mynd: EPA

Vinstri bakvörður: Marc Cucurella (Spánn) - Algjörlega frábær þegar hann klæðist spænska landsliðsbúningnum.

Mynd: EPA

Miðjumaður: Rodri (Spánn) - Stórkostlegur á mótinu og valinn besti maður HM. Er annar Ballon d’Or gullbolti í kortunum?

Mynd: EPA

Miðjumaður: Enzo Fernandez (Argentína) - Var virkilega góður á mótinu en endaði á að fá rautt spjald í úrslitaleiknum.

Mynd: EPA

Miðjumaður: Jude Bellingham (England) - Skoraði sex mörk á mótinu og var bestur Englendinga.

Mynd: EPA

Sóknarmaður: Kylian Mbappe (Frakkland) - Tryggði sér gullskóinn í leiknum um bronsið.

Mynd: EPA

Sóknarmaður: Lionel Messi (Argentína) - Hvað er hægt að segja meira um hann?

Mynd: EPA

Sóknarmaður: Erling Haaland (Noregur) - Norski markaskorarinn átti frábært mót. Hápunkturinn var tvennan geggjaða í sigrinum gegn Brasilíu.

Mynd: EPA



