Fotbolti.net
20.07.26 - 13:13
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Stubbur handarbrotinn og KA ætlar ekki á markaðinn

Stubbur kýlir hér boltann frá gegn ÍA, þetta er ekki atvikið sem Hallgrímur talar um í viðtalinu.

Stubbur kýlir hér boltann frá gegn ÍA, þetta er ekki atvikið sem Hallgrímur talar um í viðtalinu.

Canon

Mynd: Sævar Geir Sigurjónsson

Það vakti athygli í gær að Steinþór Már Auðunsson var ekki í leikmannahópi KA þegar liðið heimsótti Eyjamenn í Bestu deildinni. Steinþór Már, eða Stubbur eins og hann er oftast kallaður, er handarbrotinn og verður ekki með KA á næstunni. Þetta staðfestir Hallgrímur Jónasson, þjálfari KA, í samtali við Fótbolta.net.

Ívar Arnbro Þórhallsson stóð vaktina í marki KA og átti góðan leik.
„Stubbur er meiddur, þess vegna var hann ekki með. Hann verður ekki með í næstu leikjum þar sem hann er handarbrotinn. Hann brotnaði á móti ÍA. Á myndum sést að hann lamdi mann í hausinn og fékk á sig víti, í því atviki braut hann á sér höndina," segir Haddi.

Fullt traust á Ívar
Hvernig metur þú stöðuna, eruð þið að skoða markaðinn í leit að markmanni?

„Nei, Ívar er frábær markmaður og býr yfir mikilli reynslu, sennilega mestu reynslunni af öllum markmönnum á hans aldri (fæddur 2006). Hann spilaði í Lengjudeildinni í fyrra með Völsungi, þar á undan með Hetti í 2. deild og tímabilið þar á undan varði hann mark KA í sigri á HK í Bestu deildinni. Hann hefur verið í öllum yngri landsliðum og er þroskaður andlega, ég hef engar áhyggjur af honum. Ég hef engar áhyggjur af honum og markmannsstöðunni. Ívar sýndi hversu góður hann er með frammistöðunni gegn ÍBV, hann var gjörsamlega frábær í gær."

Ívar á að baki 16 leiki fyrir yngri landsliðin og 44 deildarleiki á sínum ferli. Leikurinn í gær var hans annar deildarleikur fyrir KA.

Reiknar ekki með frekari liðsstyrk
KA hefur fengið Adam Ægi Pálsson og Andre Römer í glugganum. Þeir byrjuðu báðir í gær og Römer skoraði fyrra mark KA. Ef þú fengir að ráða, kæmu fleiri leikmenn í glugganum?

„Nei. Við erum með langan meiðslalista, það er ekkert leyndarmál. Auðvitað vilja þjálfarar oft einn leikmann í viðbót, en eins og staðan er núna held ég að við séum ekkert að fara í það. Við erum búnir að bæta við tveimur leikmönnum, menn eru að skríða til baka eftir meiðsli og þeir sem eru í langtímameiðslum eru sumir byrjaðir að æfa aðeins. Ég reikna ekki með því að við náum í fleiri leikmenn," segir Haddi.

Næsti leikur KA er heimaleikur gegn Þór eftir viku.
Ívar varði mark Völsungs í fyrra.

Ívar varði mark Völsungs í fyrra.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Óvíst er hvenær Stubbur snýr aftur.

Óvíst er hvenær Stubbur snýr aftur.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Haddi: Dómarinn segir að hann hafi skallað hann

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Víkingur R.15+3840
2KR16+2235
3Fram15+1333
4Breiðablik15+826
5Keflavík15-419
6Valur16-619
7ÍBV15-716
8Stjarnan15-815
9ÍA15-1215
10KA15-814
11FH15-1112
12Þór15-2511
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.