Fotbolti.net
20.07.26 - 17:30
Kári Snorrason

Hvor verður í marki Víkings? - „Erfitt að velja í hverja einustu stöðu“

Auglýsing
Meiddist gegn KA í upphafi mánaðar.

Meiddist gegn KA í upphafi mánaðar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Víkingur mætir ísraelsku meisturunum í Hapoel Be'er Sheva á Víkingsvelli í 2. umferð forkeppni Meistaradeildarinnar annað kvöld.

Liðið er í fyrsta sinn komið í aðra umferð forkeppninnar og skyldu Víkingar sigra einvígið gegn Ísraelunum yrði það fyrsta íslenska liðið til að fara áfram í 3. umferð.

Fótbolti.net ræddi við þjálfara Víkings, Sölva Geir Ottesen, í Víkinni fyrr í dag.
Víkingar geta skrifað söguna - Allt sem þú þarft að vita um andstæðinginn og framhaldið
TENGT EFNI

Víkingar geta skrifað söguna - Allt sem þú þarft að vita um andstæðinginn og framhaldið

„Þetta leggst frábærlega í mig. Fyrsta skipti sem við erum í annarri umferð í forkeppni Meistaradeildarinnar. Skemmtileg þessi Evrópueinvígi. Við erum að fá alvöru andstæðing, meistarana í Ísrael. Þetta er virkilega gott lið, eins og við mátti búast,“ segir Sölvi.

Glufur hjá Ísraelunum
„Við erum búnir að vera skoða leikina hjá þeim, bæði á síðasta tímabili og meistarar meistaranna gegn Maccabi Tel Aviv. Þetta er orkumikið lið sem er stútfullt af gæðaleikmönnum. Þeir pressa af mikilli ákefð og vilja stýra leiknum.“

„Við erum á heimavelli og við þurfum að nýta okkur það. Við erum búnir að vera sterkir á heimavelli í Evrópu síðustu ár. Við mætum stórir í þennan leik og þurfum að vera hugrakkir á boltann. Það eru glufur í hápressunni hjá þeim, ef við leysum úr pressunni þeirra þá eru þeir mjög opnir til baka.“


Aron Snær kominn til baka
Sölvi segir stöðuna á hópnum mjög góða. „Auðvitað eru þetta margar mínútur sem við erum að reyna dreifa á milli manna. Við höfum náð að gera það ágætlega.“

Það eru leikmenn að koma til baka úr meiðslum, sem er mjög ánægjulegt. Stígur Diljan og Daði Berg eru að koma til baka eftir löng meiðsli. Róbert Orri kom inn í síðasta leik en var óheppinn að meiðast líka. Aron Snær er kominn til baka eftir sín meiðsli,“
segir Sölvi.

Aron Snær Friðriksson meiddist í leik Víkings gegn KA fyrir tæpum þremur vikum síðan og var hann á varamannabekk Víkings gegn Þór um helgina. Ögmundur Kristinsson kom inn í markið í hans stað og stóð í rammanum í báðum leikjum Víkings gegn Györ.

„Það er erfitt að velja í hverja einustu stöðu hér í Víkingi og það sama á við um markvarðastöðuna,“ segir Sölvi aðspurður um hvort það sé erfitt að gera upp á milli markvarðanna tveggja.
„Við mætum stórir í þennan leik.“

„Við mætum stórir í þennan leik.“

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Unnu einvígið gegn ungversku meisturunum.

Unnu einvígið gegn ungversku meisturunum.

Canon

Mynd: Víkingur/Hörður Ágústsson

Ögmundur varði mark Víkings í báðum leikjunum gegn Györ.

Ögmundur varði mark Víkings í báðum leikjunum gegn Györ.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.