HM: Frakkar áfram eftir sannfærandi sigur á Svíum

Kylian Mbappe

Mynd: EPA

Frakkar eru komnir í 16-liða úrslit

Mynd: EPA

Svíar eru úr leik

Mynd: EPA

Kylian Mbappe

Mynd: EPA
Frakkland 3 - 0 Svíþjóð
1-0 Kylian Mbappe ('45 )
2-0 Bradley Barcola ('53 )
3-0 Kylian Mbappe ('74 )
1-0 Kylian Mbappe ('45 )
2-0 Bradley Barcola ('53 )
3-0 Kylian Mbappe ('74 )
Frakkland er komið áfram í 16-liða úrslit á HM eftir sannfærandi sigur á Svíþjóð. Frakkland mætir Paragvæ í 16-liða úrslitunum sem vann óvæntan sigur á Þýskalandi í gær.
Alexander Isak fékk fyrsta færi leiksins en Mike Maignan var ekki í miklum vandræðum með skotið frá vítateigslínunni.
Frakkar voru með yfirhöndina og Kylian Mbappe kom boltanum í netið eftir tuttugu mínútna leik en rangstaða dæmd. Hann var nálægt því að setja boltann aftur í netið eftir hálftíma leik en hann skaut í stöngina, boltinn fór þaðan í Viktor Lindelöf en Jacob Zetterstorm í marki Svía kom í veg fyrir að boltinn endaði í netinu.
Michael Olise sýndi stórkostleg tilþrif stuttu síðar þegar hann tók hjólhestaspyrnu en Zetterstorm varði frábærlega frá honum.
Frakkar brutu ísinn undir lok fyrri hálfleiks þegar Mbappe lék á Viktor Gyökeres og skoraði með góðu skoti í fjærhornið. Þetta var níunda mark hans í útsláttakeppni en enginn hefur skorað jafn mörg mörk á því stigi. Þá var þetta 17. mark hans á heimsmeistaramóti og aðeins Lionel Messi hefur skorað fleiri eða 19 talsins.
Bradley Barcola bætti öðru markinu við snemma í seinni hálfleik eftir sendingu frá Olise inn fyrir vörn Svía.
Frakkar héldu áfram að sækja og þegar stundafjórðungur var til loka venjulegs leiktíma innsiglaði Mbappe sigurinn. Olise átti aftur frábæra stungu, nú á Mbappe, sem kláraði færið og innsiglaði sigurinn.
Hann er kominn með sex mörk á mótinu eins og Messi. Þá hefur hann skorað 18 mörk á heimsmeistaramótum og er aðeins einu marki frá Messi.
Paragvæ er andstæðingur Frakklands í 16-liða úrslitunum.