Fotbolti.net
30.06.26 - 17:40
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Ísak Bergmann: Fékk ást frá Brasilíu en hatur frá Argentínu

Ísak tæklaði Alexis.

Ísak tæklaði Alexis.

Canon

Mynd: EPA

Ísak Bergmann Jóhannesson pirraði marga Argentínumenn með tæklingu sinni í vináttuleik Íslands og Argentínu fyrir þremur vikum síðan. Leikurinn var lokaleikur ríkjandi heimsmeistaranna í undirbúningi fyrir HM. Ísak fór í Alexis Mac Allister og voru liðsfélagar miðjumannsins, sem spilar með Liverpool, mjög ósáttir við Íslendinginn eins og sjá má í spilaranum neðst.

Ísak var til viðtals í hlaðvarpsþættinum Chess After Dark og ræddi hann þar um tæklinguna og viðbrögðin eftir hana í tengslum við treyjuskipti, en hann reyndi ekki að fá treyju frá leikmönnum Argentínu eftir leikinn.
Ísak Bergmann gerði Argentínumenn bálreiða
TENGT EFNI

Ísak Bergmann gerði Argentínumenn bálreiða

„Ég þorði ekki að fara (til þeirra og skipta á treyjum) eftir að þeir réðust á mig. Það var svo skrítið að fá allt harðasta landslið í heimi á mig og dómarinn var eitthvað að bakka mig upp og ýta mér frá. Ég ýtti aðeins í hann (Alexis)."

„Ég fékk alvöru ást frá Brasilíumönnum á Instagram og alvöru hatur frá Argentínumönnum. Þetta var gaman,"
segir Man Utd stuðningsmaðurinn Ísak. Mikill rígur er á milli Brasilíu og Argentínu.

Ísak segir þá að Jón Dagur Þorsteinsson þurfi að þakka Arnari Gunnlaugssyni fyrri það að hafa verið spilað í vinstri bakverði því þar hafi hann fengið tækifæri á að fá treyju Lionel Messi eftir leikinn.
Ísak Bergmann: Fékk ást frá Brasilíu en hatur frá Argentínu
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Ísak Bergmann: Fékk ást frá Brasilíu en hatur frá Argentínu
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.