Fotbolti.net
30.06.26 - 17:30
Sævar Þór Sveinsson

KA hefur selt leikmenn fyrir 85 milljónir króna síðustu fimm árin

Nökkvi raðaði inn mörkum fyrir KA sumarið 2022 og var svo seldur út.

Nökkvi raðaði inn mörkum fyrir KA sumarið 2022 og var svo seldur út.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Utan

Félagaskiptatekjur KA voru tæplega 1,5 milljón króna á síðasta ári. En síðustu fimm ár hafa félagaskiptatekjur KA verið samtals 85 milljónir króna. Stærsti hluti þess kom þó árin 2021 og 2022, en fyrra árið var Brynjar Ingi Bjarnason seldur til Lecce á Ítalíu og seinna árið var Nökkvi Þeyr Þórisson seldur til Beerschot í Belgíu.

Þessi frétt er hluti af pistli sem birtist 28. júní á áskriftarvef Fótbolti.net. Pistilinn í heild sinni er hægt að nálgast neðst í fréttinni, boðið er upp á ókeypis viku áskrift gegn skráningu.

Smelltu hér til að skrá þig í fría vikuáskrift.

Rekstrartekjur KA voru 460 milljónir króna árið 2025 og hækkuðu um tæpar 100 milljónir króna á milli ára, eða sem um nemur 28% hækkun. Stærsti hluti tekna KA voru aðrar rekstrartekjur sem voru 75% af rekstrartekjum KA, en þessi tekjuliður er einmitt sá sem hækkaði mest á milli ára. Í skýringum ársreikningsins má sjá að hækkunin á öðrum rekstrartekjum er meðal annars vegna Evróputekna sem voru 75 milljónir króna árið 2025.

Rekstrargjöld KA voru 476 milljónir króna á síðasta ári og jukust um 25% á milli ára. Tæplega 90% af útgjöldum KA fóru í laun og annan rekstrarkostnað, en sitthvor liðurinn var tæplega 212 milljónir króna. Annar rekstrarkostnaður hækkaði um 65 milljónir króna á milli ára, eða tæplega 44% hækkun. Í skýringum ársreikningsins má sjá að annar rekstrarkostnaður hækkaði meðal annars vegna aukins ferðakostnaðar. Sá útgjaldaliður hækkaði um 32 milljónir króna á milli ára.

Smelltu hér til að skrá þig í fría vikuáskrift.

UTAN VALLAR: Rekstrartekjur KA jukust um 100 milljónir á síðasta ári
TENGT EFNI

UTAN VALLAR: Rekstrartekjur KA jukust um 100 milljónir á síðasta ári

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.