Fotbolti.net
30.06.26 - 18:12
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Summerville á óskalista Man Utd

Summerville á óskalista Man Utd
Canon

Mynd: EPA

Crysencio Summerville er helsta skotmark Man Utd á vinstri vænginn í sumar.

Það er óljóst hvort Man Utd reyni að kaupa vinstri vængmann í sumar en það fer eftir framtíð Marcus Rashford.

Félagið ætlar sér þó að einbeita sér að miðsvæðinu en Summerville er á radarnum. Man Utd er að missa af Mateus Fernandes, miðjumanni West Ham, sem er á leið til Tottenham.

Rashford snýr aftur á æfingasvæði Man Utd þegar England lýkur keppni á HM. Hann vill fara aftur til Barcelona og spænska félagið vill fá hann aftur á láni. United vill ekki lána hann aftur svo framtíð hans er í lausu loft eins og er.

Summerville var í landsliðshópi Hollendinga sem féll úr leik á HM eftir vítaspyrnukeppni gegn Marokkó í nótt. Hann skoraði eitt mark gegn Japan í riðlakeppninni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.