Fotbolti.net
30.07.19 - 22:47
Stefán Marteinn Ólafsson
Í samstarfi við styrktaraðila

Frans: Mér fannst framistaðan svo sem ekkert endilega alltof góð í dag

Auglýsing
Frans Elvarsson bjargvættur Keflavíkur í kvöld

Frans Elvarsson bjargvættur Keflavíkur í kvöld

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Bára Dröfn Kristinsdóttir

Keflavík fékk bræður sína í Njarðvík nú í kvöld þegar flautað var til leiks í 15.Umferð Inkasso deildar karla.
Leikurinn var fremur jafn og allt stendi í markalaust jafntefli en þegar komið var fram yfir venjulegan leiktíma steig Frans Elvarsson leikmaður Keflavíkur upp og sá til þess að Keflavík tæki öll stigin í kvöld.
„Gott að komast aftur á sigurbraut og skemmtileg tímasetning á að fá sigurmark." Sagði Frans Elvarsson leikmaður Keflavíkur eftir leikinn í kvöld.



Þegar allt virtist ætla stefna í markalaust jafntefli náði Frans að koma góðu skoti á markið sem lak inn og því ekki úr vegi að spyrja hvort það hafi ekki verið sætt að sjá boltann inni.

„Það var mjög sætt fyrst og það var mjög góð tilfining." 



Keflavík og Njarðvík eiga ríka sögu af rimmum í örðrum íþróttagreinum en þegar kemur að fótbolta hefur ekki farið mikið fyrir rimmum milli þessara liða en leikir við nágrannalið eru þó alltaf sérstakir.
Aðspurður um hvort það að sigur á móti Njarðvík sé sérstakari en aðrir sigrar hafði Frans Elvarsson þetta að segja.

„Það er svosem alltaf sætt að vinna nágrannana en kannski súrsætt fyrir mig þar sem ég var fjögur ár í Njarðvík og því er þetta kannski pínu súrsæt tilfining."



Þessi sigur hlítur að gefa Keflvíkingum mikið fyrir lokasprettinn en þrátt fyrir það að vera kannski ekki í neinni baráttu í Inkasso deildinni að þá er stoltið undir.

„Já, alltaf gaman að fá þrjú stig en mér fannst framistaðan svo sem ekkert endilega alltof góð í dag, svolítið kaflaskiptur leikur en gott að klára stigin þrjú."



„Mér fannst við meiga vera beittari fram á við, þetta var hálf bitlaust þegar við vorum komnir fram á við og hefðum mátt vera aggresívari við að taka menn á og koma boltanum fyrir markið en það vonandi kemur bara á næstunni." 
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.